Spjallborðið

Efnisyfirlit spjallborðs

 Grunnur að góðum þræði

Höfundur Skilaboð
Snillingurinn

  • Heildarfjöldi bréfa : 291
  • Notandi síðan: 11.12
  • Hvar býrðu: Er miðbæjarrotta
  • Staða: ekki tengdur
Grunnur að góðum þræði - 18. Oct 04 20:01 ( #1 )
Eitt af því sem að spjallstjórnin ákvað að prófa í viðleitni sinni til að bæta spjallið var að setja saman léttar leiðbeiningar eða ráðleggingar um það hvernig góð bréf eru skrifuð.
Þetta eru EKKI reglur heldur er þetta eingöngu gert til að gefa mönnum smá hugmynd um það hvernig hægt er að bæta skrif sín á spjallinu.

Fyrirsögn:
Fyrirsögnin ætti að vera lýsandi fyrir efni bréfsins.
Dæmi um góða fyrirsögn er t.d. “Úrvalsdeildarleikmaður fellur á lyfjaprófi?” Þessi fyrirsögn gefur manni nokkuð góða hugmynd um það hvað er verið að ræða um.
Dæmi um laka fyrirsögn er t.d. “Þetta er ótrúlegt!!!!” Ekki er nokkur leið til að sjá út úr þessari fyrirsögn um hvað verið er að ræða.

Meginmál:
Það sem að skrifað er ætti að vera greinargott og skipulega sett upp. Mjög erfitt getur verið að lesa bréf sem að eru öll í belg og biðu og maður tapar áttum mjög auðveldlega.
Betra er gefa sér smá tíma í að setja bréfið aðeins skipulegar upp. Huga t.d. að punktum og kommum og ekki er verra að setja greinarskil. Einnig er ágætt að hafa það í huga að setja stóran staf á eftir punktum. Þetta gerir bréfin mun læsilegri.
Vissulega eru menn misgóðir í stafsetningu og er ekki verið að krefjast þess að menn séu íslenskufræðingar til að fá að skrifa á spjallið heldur einungis að fá menn til að hugsa aðeins um þessa hluti.

Dæmi um illa læsilegt bréf:

ég man nú ekki nákvæmlega hvenær það var sem að ég byrjaði að halda með Liverpool en það eru alla vega rúm 20 ár síðan líkt og með SStein þá get ég ekki sagt alveg til um það afhverju ég valdi Liverpool sérstaklega þar sem að það var ekki mikill fótboltaáhugi á mínu heimili en líklega hafa það verið áhrif frá móðurbróður mínum sem að er eldheitur púllari ein af mínum elstu minningum af Liverpool eru því miður ekki mjög góðar þær eru þegar að ég sat fyrir framan sjónvarpið 29. maí 1985 tólf ára gamall og sá beinni útsendingu þær hörmungar sem að þá áttu sér stað á Heysel leikvanginum í Belgíu en að spurningunni hans Steina það sem að þessi áhugi minn hefur gefið mér einna mest í gegnum tíðina er félagskapurinn og allir vinirnir sem að ég hef eignast í gegnum þetta sérstaklega eftir að ég flutti í borg óttans og fór að venja komur mínar á Ölver og seinna Players.


Sama bréf sett upp skipulega:

Ég man nú ekki nákvæmlega hvenær það var sem að ég byrjaði að halda með Liverpool en það eru alla vega rúm 20 ár síðan. Líkt og með SStein þá get ég ekki sagt alveg til um það afhverju ég valdi Liverpool, sérstaklega þar sem að það var ekki mikill fótboltaáhugi á mínu heimili, en líklega hafa það verið áhrif frá móðurbróður mínum sem að er eldheitur púllari.

Ein af mínum elstu minningum af Liverpool eru því miður ekki mjög góðar. Þær eru þegar að ég sat fyrir framan sjónvarpið 29. maí 1985, tólf ára gamall, og sá beinni útsendingu þær hörmungar sem að þá áttu sér stað á Heysel leikvanginum í Belgíu.

En að spurningunni hans Steina.
Það sem að þessi áhugi minn hefur gefið mér einna mest í gegnum tíðina er félagskapurinn og allir vinirnir sem að ég hef eignast í gegnum þetta, sérstaklega eftir að ég flutti í borg óttans og fór að venja komur mínar á Ölver og seinna Players.


Tilvitnanir:
Ekki ofnota tilvitnanir. Tilvitnanir eru mjög nytsamlegar þegar að verið er að svara löngum pósti eða þræði sem að er í stærra lagi því að þær auðvelda mönnum að halda samhengi í svarinu. Fyrir vikið verður mun auðveldara að lesa svarið því að þá þarf ekki að skrolla fram og aftur til að ná samhenginu.
En ofnotkun á tilvitnunum geta verið varasamar. Þannig þjónar það engum tilgangi að vitna í bréf í heild sinni og bæta síðan eingöngu við “sammála”

Að lokum er vert að benda á það að lesa lauslega yfir bréfið aftur áður en að það er póstað inn á spjallið. Þannig geta menn séð augljósar villur og leiðrétt þær strax.
< Skilaboðum breytt af Snillingurinn -- 18.10.2004 20:03:04 >
Kveðja
Gunnar Gunnarsson
A.k.a. Snillingurinn
---------------------------------------------------------
" The future will be better tomorrow." Dan Quayle

" A zebra does not change its spots." Al Gore

Hoppa í:

Núverandi virkir notendur
Það eru 0 meðlimir og 1 gestir
Spjallborðsheimildir
  • Ný skilaboð
  • Engin ný skilaboð
  • Heitar umræður með nýjum skilaboðum
  • Heitar umræður án nýrra skilaboða
  • Læst með nýjum skilaboðum
  • Læst án nýrra skilboða
  • Lesa skilaboð
  • Stofna nýjan þráð
  • Svara
  • Stofna nýja könnun
  • Senda inn atkvæði
  • Senda inn nýjan verðlaunapóst
  • Eyða mínum eigin bréfum
  • Eyða mínum eigin þráðum
  • Gefa bréfi einkunn

© 2000-2009 ASPPlayground.NET Forum Version 3.5