Spjallborð Liverpoolklúbbsins á Íslandi
Reglur
Áminning og brottrekstur af spjallinu. Stjórnendur liverpool.is hafa sett upp reglur til halda uppi aga hér á spjallborðinu.
1. Spjallborðið skal vera vettvangur málefnalegrar umræðu um efni þess og vera innan þeirra marka sem sett eru af spjallstjórn hverju sinni og tekin fram í reglum spjallsins. Öll frávik frá þessari reglu geta leitt til áminningar og brottvísunar af spjallinu.
2. Ef þú ætlar að setja inn nýtt bréf en sérð annað bréf um sama efni á forsíðunni, settu það þá frekar þar inn heldur en að stofna nýtt.
3. Þú skalt ekki svara bréfum sem eru eldri en 1 mánaðargömul. Þú skalt frekar stofna nýtt bréf og setja inn link á bréfið sem þú varst að svara.
4. Skítkast, rógburður, illgirni og dónaskapur gagnvart einstaklingum (t.d. leikmönnum annara liða) verður ekki liðinn.
5. Tilvísanir í götublaðið The S*n eru bannaðar og mun öllum bréfum sem vísa í götublaðið, hvort sem það er með beinum eða óbeinum hætti, umsvifalaust verða eytt. Eina undantekningin frá þessu er, ef efnið fjallar sérstaklega um Hillsborough slysið eða annað tengt baráttu fórnarlamba þess og afkomenda þeirra.
6. Myndir í undirskriftum skulu ekki vera breiðari en 300px og ekki hærri en 200px. Stærð á myndum skal ekki vera meiri en 50 kb. Ekki er leyfilegt að vera með fleiri en eina mynd í undirskrift.
7. Öllu klámfengnu efni verður hent út.
8. Ekki birta símanúmer, heimilisföng á spjallborðinu (hvorki þitt né annarra).
9. Reyndu að birta bréfið þitt undir réttum efnisflokki. Bréfum sem eiga ekki heima undir viðkomandi efnisflokki verður hent út nema spjallstjórn hafi veitt undanþágu frá reglunni.
10. Undirskriftir í bréfum mega EKKI innihalda link á vef sem inniheldur efni sem gæti skaðað eða móðgað aðra spjallborðsgesti.
11. Óheimilt er að setja inn tengla (linka) yfir á skrár sem geta borið með sér tölvuvírusa, orma (trójuhesta) eða önnur skaðleg forrit. Slíkum þráðum verður umsvifalaust eytt nema spjallstjórnin telji um ósýkta skrá að ræða, t.d. skrár inni á opinberu vefsetri Liverpool eða á öðrum traustum vefmiðlum.
12. Við skráningu skal gefa upp gilt netfang, ellegar er skráning ógild. Einnig er notendum skilt að hafa gilt netfang skráð í sínum prófíl.
Til þess að framfylgja þessum reglum hefur verið tekið upp kerfi með áminningum og brottrekstri, líkt og gerist í boltanum, þ.e. gul og rauð spjöld.
Sé pósti eytt út vegna brots á einhverjum þessara reglna, fær viðkomandi tiltal eða gult spjald, eftir þvi hversu gróft brotið er. Gult spjald skal gefa ef tiltal hefur ekki áhrif.
Haldin er skrá yfir brot og eðli þeirra af stjórnendum spjallsins.
Tiltali er eytt úr skrám liverpool.is, ef viðkomandi brýtur ekki af sér í tvær vikur og gult spjald fellur niður á sex vikum.
Tvö gul spjöld (= rautt) eru brottrekstur og er refsing fyrir fyrsta brot tveggja vikna brottvikning af spjallinu. Refsing fer stigvaxandi ef áframhald er á spjaldasöfnuninni og endar með útilokun.
Rautt spjald er gefið fyrir einstaklega gróft brot á reglum borðsins og verður hvert brot tekið sérstaklega fyrir. Ekki er skylda að veita þeim inngöngu á ný sem hlotið hafa rautt spjald.
<message edited by HDN on 27. des. 06 20:43>