Spjallborðið

 Leikir dagsins

Change Page: < 12345678910 | Showing page 10 of 10, messages 271 to 273 of 273
Author Message
víðförull

  • Total Posts : 1024
  • Joined: 02.02
  • Status: offline
Re:Leikir dagsins 12. júl. 10 13:13 (permalink)
Júlli


Keyser Söze


1. Bull eða ekki bull. Hann var greinilega samkvæmur sjálfum sér fyrst hann rak hvorki De Jong né Puyol ekki satt?
2. Þrátt fyrir að það hafi verið 100% rautt á De Jong.
3. Og ekki reyna að halda því fram að Heitinga hafi ekki átt skilið rautt.
4. Ég ætla ekki að verja Puyol en Robben færði sér það ekki nógu vel í nyt (léti sig falla í 99.99999999% tilfella og það væri = rautt) og hann hafði tíma og hefði getað gert mikið betur fyrst hann ákvað að standa!

5. Ég er sammála því að menn eigi ekki að komast upp með að heimta spjöld í leikjum en ég hef ekki einu sinni séð dæmt á það í þessu móti, sama hjá hvaða liði.
6. Og að taka Xavi og Iniesta sérstaklega út fyrir það er í besta falli kjánalegt. Robben, Snejder og fleiri voru nákvæmlega ekkert skárri. Og sá allra versti í öllu mótinu í svona löguðu er enginn annar en Mark Van Bommel! Hann sýndi af sér skítahegðun í hverjum einasta leik í þessu móti og hefði með réttu átt að fá rautt í hverjum einasta leik í mótinu. 

7. Og það er augljóst að appelsínugulu gleraugun hans Júlla í þessum leik voru í sterkari kantinum ef hann ætlar að halda því fram að aðeins Spánverjar hafi hent sér niður við hvert tækifæri. Fyrir utan það að Hollendingar voru hreint og beint grófir!

8. Bommel, Heitinga, Robben og De Jong hefðu með réttu átt að fá rautt og svo Puyol. Vá hvað það hallaði á Holland maður!!!


1. Þú berð ekki saman De Jong og Puyol atvikið þú berð saman atvikið hjá Puyol og Heitinga þegar litið er á það brotalega séð. Ég sagði og ég kvóta "sleppti rauðu á Jong og Puyol" og svo í framhaldi af því kom þetta hér: "fyrst Heitinga fékk rautt þá átti Puyol að fá rautt." Þarf ég að útskýra þetta fyrir þér betur? De Jong atvikið er af allt öðrum toga en Heitinga og Puyol sem voru sömu atvik nema að Iniesta sem nota bene lá sárþjáður á köflum þó engar snertingar væru lá en ekki Robben. Þarna er dómarinn ekki sjálfum sér samkvæmur og þú hlýtur að sjá það. Alltaf rautt(seinna gula) á Heitinga og fáránlegt að Puyol hafi ekki fengið það sama bara af því að leikmaðurinn sem hann hékk í lét sig ekki falla.

2. Já átti að vera rautt á De Jong, sagði einhver eitthvað annað?

3. Nei ég gerði það ekki, hvar sástu það?

4. Það er nákvæmlega það sem þú ert að gera, þú ert að verja Puyol því Robben fellur ekki. Ég les það allavegana útúr þessu hjá þér.

5. Rétt hjá þér en þeir leikir sem ég hef séð hjá Spáni þá hafa einmitt Iniesta og Xavi verið duglegri en flestir við að veifa hendinni.

6. Af hverju getur þú ekki haldið þig við þennan leik? Í þessum leik, úrslitaleiknum voru Xavi og Iniesta alltaf hreint að heimta spjöld á meðan að Hollendingarnir voru mun rólegri á þeim nótum þó að Robben hafi vissulega gert það. Ég hef líka sagt að Robben átti að fá rautt því t.d. sparkaði hann tuðrunni í burtu í framlengingu. Hann fékk ekki gult en leikmaður Spánar fékk gult fyrir það sama, sem sagt Webb skeit uppá bak.

7. Blessaður hættu nú þvaðri um hvaða gleraugu menn eru með. Ég held með Þjóðverjum og svo styð ég öll lið gegn Spáni en er langt frá því að hafa appelsínu gul gleraugu. 28-19 í aukaspyrnum og spánverjar féllu auðveldlega í mörgum tilfellum. Meira að segja konan mín sem hatar fótbolta og hefur lítið vit á þessu og horfði á þetta með öðru spurði oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, hvað er að manninum, það kom enginn við hann og átti hún þá við Iniesta. Fyrst þegar enginn kom við hann og svo þegar hann lét sig falla þegar hann sjálfur steig ofan á Heitinga.
Hollendingar voru oft harðir en spánverjar voru eins og þeir eru bestir, liggjandi í grasinu við hvert tækifæri.

8. Í fyrsta lagi þá er ég búinn að segja að spjaldið sem Heitinga fékk var rétt, De Jong átti að fá rautt og síðar Robben. En að þú sért svona ótrúlega illa að þér og viljir bara gefa Puyol rautt sýnir að þú ættir að þegja um gleraugu annarra. Xavi, Iniesta og Capadevlli eða hvað hann heitir báðu allir um spjöld, feikuðu meiðsli og þeir voru ekki þeir einu hjá Spánverjum.

Svo spyr ég hvar sagði ég að það hefði hallað að Hollandi? Ég sagði að Webb hefði skitið uppá bak sem hann gerði. Bæði með því að halda De Jong og Robben inni sem og að margir spánverjarnir komust upp með leikaraskap. Ef þú sérð það ekki þá ættir þú kannski ekki að ræða fótbolta því það er á hreinu að þú í fyrsta lagi skilur ekki það sem aðrir segja og í öðru lagi þá ásakar þú menn um einhver gleraugu þegar þú ert svo litaður sjálfur að þú sérð  ekki í gegnum þín gleraugu.
Webb var lélegur og það er staðreynd.


Er að mörgu leiti sammála þér Júlli, nema mér fannst Webb standa sig ágætlega þótt margt hefði mátt vera öðruvísi!!
Held einfaldlega að hann hafi verið að reyna að bjarga leiknum með því að gefa ekki þessi rauðu spjöld, hefðu klárlega eyðilagt leikinn að gefa þau?
En þá er spurningin hvursu langt á að ganga á svig við reglurnar t.d. Jong sem var klárt beint rautt spjald!
Webb hélt sömu línu allan leikinn og leikmenn fundu það og gengu eins langt og þeir greinilega fundu að Webb liði??
Á slíkt má alltaf deila enda eru reglur til að beygja þær hæfilega, sem er svo aftur mats atriði hvers og eins.

Mér fannst hann sem sagt standa sig vel og á þá við að hann hélt línunni sem hann setti strax í upphafi og það verður ekki tekið af honum.
Maður hefur of oft séð dómara setja línu en fara svo algerlega út af henni, slíkt er líka merki um lélega dómgæslu svo það er að mörgu að hyggja í þessu og gaman að diskútera það á málefnalegan hátt?
One of these day´s I´m going to cut you in to little pieces
 
    Fuglinn

    • Total Posts : 11126
    • Joined: 30.10
    • Location: Grafarvogi
    • Status: offline
    Re:Leikir dagsins 12. júl. 10 18:06 (permalink)
    Mér fannst Webb góður í gær. í raun alveg frábær, eins og margir segja þá hélt hann sömu línu allan leikinn. Tók líka mjög vel á því að leikmenn voru alltaf að reyna stela metrum í innköstum. Alveg óþolandi þegar leikmenn komast upp með það.
    Ég held að hann hafi bara ekki séð þetta atvik hjá Jong nægilega vel til þess að gefa rautt á það. Held að hann hafi klárlega gefið rautt ef hann hefði séð þetta fullkomlega.

    http://spjall.liverpool.i...mpage=1#741399Endilega tjáið ykkur um Em í fótbolta.

     
      Júlli

      • Total Posts : 20889
      • Joined: 17.01
      • Location: Í Noregi, Mjøndalen
      • Status: offline
      Re:Leikir dagsins 14. júl. 10 05:40 (permalink)
      Ég verð að fá að spyrja menn sem finnst Webb hafa átt góðan leik. Er það í alvörunni að eiga góðan leik að dæma ekki rétt og réttlæta það svo með annarri vitlausri dómgæslu? Er það góð dómgæsla að dæma brot á Hollendinga þegar þeir snertu ekki leikmenn og þegar spænskir voru brotlegir sbr Iniesta í tvígang með stuttu millibili?

      Ef dómari dæmir vitlaust þá er það lélegt og ef hann réttlætir það með fleiri röngum dómum þá getur það ekki verið góð dómgæsla. Mér finnst það allavegana ekki.
      Stuðningsmaður Liverpool, Napoli og Dortmund. Ný tippkeppni og fantasy leikur.

       
        Online Bookmarks Sharing: Share/Bookmark
        Change Page: < 12345678910 | Showing page 10 of 10, messages 271 to 273 of 273

        Jump to:

        Current active users

        There are 0 members and 1 guests.

        Icon Legend and Permission

        • New Messages
        • No New Messages
        • Hot Topic w/ New Messages
        • Hot Topic w/o New Messages
        • Locked w/ New Messages
        • Locked w/o New Messages
        • Read Message
        • Post New Thread
        • Reply to message
        • Post New Poll
        • Submit Vote
        • Post reward post
        • Delete my own posts
        • Delete my own threads
        • Rate post

        2000-2012 ASPPlayground.NET Forum Version 3.9