Spjallborðið

 Leikir dagsins

Change Page: < 12345678910 > | Showing page 9 of 10, messages 241 to 270 of 273
Author Message
Litmanen

  • Total Posts : 3251
  • Joined: 12.01
  • Location: Eyjafjarðarsveit
  • Status: offline
Re:Leikir dagsins 07. júl. 10 20:41 (permalink)
en djöfull pwnar þessi kolkrabbi
At the end of Gillett & Hicks there's a golden sky...
 
    ÁP

    • Total Posts : 11489
    • Joined: 11.12
    • Location: Hafnarfirði hvað annað
    • Status: online
    Re:Leikir dagsins 07. júl. 10 20:54 (permalink)
    Jobbi


    Sigur fyrir fótboltann að Þýskaland hafi ekki komist í úrslitaleikinn og Klose ekki jafnað eða bætt met Ronaldo. Nú er bara að vona að Spánverjar taki Holland á sunnudaginn.


    Þú veist það vonandi að Þýskaland eru ekki að fara heim. Þeir eiga eftir að mæta Forlan og félögum þannig að Klose getur vel bætt eða jafnað þetta met.






    “At the end of the storm there’s a golden sky”
     
      suso

      • Total Posts : 692
      • Joined: 02.04
      • Status: offline
      Re:Leikir dagsins 07. júl. 10 20:57 (permalink)
      Djöfull verður gaman á Sunnudaginn. Spánn - Holland. En Spánverjar bara stoppuðu allt saman hjá þjóðverjum. Sóknar defense er best


       
        Jobbi

        • Total Posts : 6102
        • Joined: 27.12
        • Location: heima hjá mér
        • Status: offline
        Re:Leikir dagsins 07. júl. 10 20:58 (permalink)
        ÁP


        Jobbi


        Sigur fyrir fótboltann að Þýskaland hafi ekki komist í úrslitaleikinn og Klose ekki jafnað eða bætt met Ronaldo. Nú er bara að vona að Spánverjar taki Holland á sunnudaginn.


        Þú veist það vonandi að Þýskaland eru ekki að fara heim. Þeir eiga eftir að mæta Forlan og félögum þannig að Klose getur vel bætt eða jafnað þetta met.


        Ég var búinn að gleyma leiknum. Vonandi skorar hann ekki í leiknum.
        Áfram Liverpool
         
          víðförull

          • Total Posts : 1024
          • Joined: 02.02
          • Status: offline
          Re:Leikir dagsins 07. júl. 10 20:59 (permalink)
          Spánverjar mun betri og Þýskir komust bara ekkert áfram, en held nú samt að leikurinn hefði farið öðruvísi hefði vítið verið dæmt og Ramos fengið rautt??
          En frábærir Spánverjar sigruðu skemmtilegasta lið keppninnar!
          One of these day´s I´m going to cut you in to little pieces
           
            Fuglinn

            • Total Posts : 11126
            • Joined: 30.10
            • Location: Grafarvogi
            • Status: offline
            Re:Leikir dagsins 07. júl. 10 22:41 (permalink)
            Samano


            Jobbi


            Sigur fyrir fótboltann að Þýskaland hafi ekki komist í úrslitaleikinn og Klose ekki jafnað eða bætt met Ronaldo. Nú er bara að vona að Spánverjar taki Holland á sunnudaginn.




            Afhverju segirðu sigur fyrir fótboltann? Þjóðverjar eru ekki búnir að spila neitt annað en skemmtilegan fótbolta á meðan spánverjar hafa komist áfram á einhverjum vafaatriðum. Svo átti Özil að fá aukaspyrnu eða víti í fyrri hálfleik.


            Hann átti að fá auka, aldrei víti því brotið er fyrir utan teig, en ef dómarinn hefði dæmt á þetta þá hefði verið rautt spjald og leikurinn ónýtur. En þessi sigur er fyllilega verðskuldaður og ef einhver segir eitthvað annað þá held ég að hann þurfi að horfa á leikinn aftur, Spánn yfir spilaði Þýskaland í þessum leik og voru mun betri.  Sýndu að fótbolti sýnst um það að toppa á réttum tíma og þá skipta önnur úrslit ekki máli. Held að Spánn vinni þessi keppni, enda með svakalega gott lið.

            Ég er sammála þér Jobbi með sigur knattspyrnuna því að betra liði á að vinna og það gerðist í dag, alveg sama hvað Hjörvar Hafliða segir.

            http://spjall.liverpool.i...mpage=1#741399Endilega tjáið ykkur um Em í fótbolta.

             
              Keyser Söze

              • Total Posts : 701
              • Joined: 26.05
              • Status: offline
              Re:Leikir dagsins 07. júl. 10 22:45 (permalink)
              Samano


              Jobbi


              Sigur fyrir fótboltann að Þýskaland hafi ekki komist í úrslitaleikinn og Klose ekki jafnað eða bætt met Ronaldo. Nú er bara að vona að Spánverjar taki Holland á sunnudaginn.




              Afhverju segirðu sigur fyrir fótboltann? Þjóðverjar eru ekki búnir að spila neitt annað en skemmtilegan fótbolta á meðan spánverjar hafa komist áfram á einhverjum vafaatriðum. Svo átti Özil að fá aukaspyrnu eða víti í fyrri hálfleik.
               

              Ekki taka því neitt persónulega að ég svari öðru bréfi frá þér ;)... en come on! Granted, mér fannst þetta vera brot og það hefði vissulega breytt leiknum, en er það allt í einu það sem við viljum? Það er ekki eins og mark hafi verið tekið af þeim, eina sem gerðist var að það var enn 11 á móti 11 og jafnir möguleikar fyrir bæði lið að sigra = betri leikur imo. Og það var klárlega betra liðið sem vann, kannski ekki bestir gegnum allt mótið, en síðan hvenær hefur það skipt máli?!

              Hafa Þjóðverjar líka ekki hagnast á vafasamri dómgæslu?

              Annars hefur Klose því miður 1 tækifæri til viðbótar gegn Úrúgvæ og er ég ansi hræddur um að hann eigi ekki aðeins eftir að jafna Ronaldo heldur toppa hann 


              Beauty is pain... enda er ég með stanslausa verki í öllum líkamanum.
               
                Samano

                • Total Posts : 3315
                • Joined: 23.07
                • Status: offline
                Re:Leikir dagsins 07. júl. 10 23:01 (permalink)
                Fuglinn


                Samano


                Jobbi


                Sigur fyrir fótboltann að Þýskaland hafi ekki komist í úrslitaleikinn og Klose ekki jafnað eða bætt met Ronaldo. Nú er bara að vona að Spánverjar taki Holland á sunnudaginn.




                Afhverju segirðu sigur fyrir fótboltann? Þjóðverjar eru ekki búnir að spila neitt annað en skemmtilegan fótbolta á meðan spánverjar hafa komist áfram á einhverjum vafaatriðum. Svo átti Özil að fá aukaspyrnu eða víti í fyrri hálfleik.


                Hann átti að fá auka, aldrei víti því brotið er fyrir utan teig, en ef dómarinn hefði dæmt á þetta þá hefði verið rautt spjald og leikurinn ónýtur. En þessi sigur er fyllilega verðskuldaður og ef einhver segir eitthvað annað þá held ég að hann þurfi að horfa á leikinn aftur, Spánn yfir spilaði Þýskaland í þessum leik og voru mun betri.  Sýndu að fótbolti sýnst um það að toppa á réttum tíma og þá skipta önnur úrslit ekki máli. Held að Spánn vinni þessi keppni, enda með svakalega gott lið.

                Ég er sammála þér Jobbi með sigur knattspyrnuna því að betra liði á að vinna og það gerðist í dag, alveg sama hvað Hjörvar Hafliða segir.



                Dómarinn hefur sémsagt hugsað "best að eyðileggja ekki leikinn með því að dæma ekki á þetta". Sjálfur hef ég aldrei haldið með þjóðverjum. Ég hélt með spáni og hollandi í byrjun móts en mér finnst Spánverjar hafa verið allt annað en skemmtilegir, sífellt vælandi í jörðini og Busquets alltaf með þetta ósýnilega spjald en fær aldrei spjald fyrir þá stæla. Spánverjar voru miklu betri í þessum leik. Maður mótsins hlítur að vera Bastian Schweinsteiger.
                <message edited by Samano on 08. júl. 10 15:45>

                 
                  Júlli

                  • Total Posts : 20889
                  • Joined: 17.01
                  • Location: Í Noregi, Mjøndalen
                  • Status: offline
                  Re:Leikir dagsins 08. júl. 10 12:04 (permalink)
                  Jæja sá síðustu 5 mínúturnar og missti klárlega ekki af miklu. Óttaðist þetta fyrir leik og mín versta martröð varð að veruleika eða að Spánn ynnu leikinn.
                  Vona bara að mínir menn taki 3 sætið og að Holland vinni Spán.

                  Það sem er vissulega gaman við komandi úrslitaleik að hvorugt lið hefur unnið HM áður þannig að það verður nýtt land sem skráir sig í sögubækurnar á sunnudaginn kemur.
                  Stuðningsmaður Liverpool, Napoli og Dortmund. Ný tippkeppni og fantasy leikur.

                   
                    Fuglinn

                    • Total Posts : 11126
                    • Joined: 30.10
                    • Location: Grafarvogi
                    • Status: offline
                    Re:Leikir dagsins 08. júl. 10 17:52 (permalink)

                    Maður mótsins hlítur að vera Bastian Schweinsteiger.


                    Ég held að Wesley Sneijder verði valinn maður mótsins ef Holland vinnur það, annars einhver úr Spáni. Schweinsteiger sást ekki í gær og var bara slakur.
                    Wesley Sneijder er búinn að vera frábær allt mótið og á alveg skilið að vera valinn maður mótsins.

                    http://spjall.liverpool.i...mpage=1#741399Endilega tjáið ykkur um Em í fótbolta.

                     
                      víðförull

                      • Total Posts : 1024
                      • Joined: 02.02
                      • Status: offline
                      Re:Leikir dagsins 08. júl. 10 21:58 (permalink)
                      Mér finnst reyndar að Diego Forlan sé maður mótsins!!
                      One of these day´s I´m going to cut you in to little pieces
                       
                        Kiddi1

                        • Total Posts : 2119
                        • Joined: 03.03
                        • Location: Danmörk
                        • Status: offline
                        Re:Leikir dagsins 08. júl. 10 23:59 (permalink)

                        Þjóðverjar eiga einn leik eftir og Klose getur því ennþá jafnað/bætt met Ronaldos.Og ef hann gerir það þá er hann maður mótsins að mínu mati.

                        Annars eru Spánverjar í sérflokki í heiminum í dag. Lið sem getur haft menn eins og Fabregas og Torres á bekknum er asnalega gott. Gæti jafnvel trúað að þetta lið sé betra en Frakkar voru með 98 og árunum þar á eftir.
                        When I die, I want to go peacefully like my Grandfather did, in his sleep -- not screaming, like the passengers in his car
                         
                          Baboko

                          • Total Posts : 7346
                          • Joined: 17.07
                          • Location: Denver
                          • Status: offline
                          Re:Leikir dagsins 09. júl. 10 11:31 (permalink)
                          http://fotbolti.net/fullS...viewStory&id=94029 Spánverjar heimsmeistarar samkævmt Páli.
                           
                          Gummi Ben er legend!
                           
                            Jobbi

                            • Total Posts : 6102
                            • Joined: 27.12
                            • Location: heima hjá mér
                            • Status: offline
                            Re:Leikir dagsins 10. júl. 10 20:14 (permalink)
                            Klose bætti ekki metið sem er jákvætt eftir að þjóverjar tryggðu sér 3 sætið. Hefði viljað sjá þá tapa.

                            Nú er að vona að Spánverjar slátri hollendingum á morgun enda ömurlegt lið með ömurlega karaktera.
                            Áfram Liverpool
                             
                              Júlli

                              • Total Posts : 20889
                              • Joined: 17.01
                              • Location: Í Noregi, Mjøndalen
                              • Status: offline
                              Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 05:54 (permalink)
                              Ég þori varla að halda með Hollendingum í dag því það virðist vera þannig að ef ég styð eitthvað lið gegn spánverjum þá vinna þeir.

                              Mér hryllir við tilhugsuninni að spánn vinni HM, það er jafn mikil martröð og að Utd vinni deildina.
                              <message edited by Júlli on 11. júl. 10 06:09>
                              Stuðningsmaður Liverpool, Napoli og Dortmund. Ný tippkeppni og fantasy leikur.

                               
                                Keyser Söze

                                • Total Posts : 701
                                • Joined: 26.05
                                • Status: offline
                                Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 16:12 (permalink)
                                Alveg rrrrrrólegur á hatrinu Júlli minn... ;)
                                Beauty is pain... enda er ég með stanslausa verki í öllum líkamanum.
                                 
                                  Júlli

                                  • Total Posts : 20889
                                  • Joined: 17.01
                                  • Location: Í Noregi, Mjøndalen
                                  • Status: offline
                                  Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 18:42 (permalink)
                                  Keyser Söze


                                  Alveg rrrrrrólegur á hatrinu Júlli minn... ;)


                                  Why? Eg meina Liverpool menn herna fyrirlita Utd og eg er a somu skodun vardandi span thannig ad eigi thid og eg ad vera rolegir a hatrinu i gard Utd??
                                  Stuðningsmaður Liverpool, Napoli og Dortmund. Ný tippkeppni og fantasy leikur.

                                   
                                    Jobbi

                                    • Total Posts : 6102
                                    • Joined: 27.12
                                    • Location: heima hjá mér
                                    • Status: offline
                                    Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 21:10 (permalink)
                                    Jæja sem betur fer vann Spánn, hefði ekki afborið það að sjá Holland eða kát vinna bikarinn.
                                    Áfram Liverpool
                                     
                                      Júlli

                                      • Total Posts : 20889
                                      • Joined: 17.01
                                      • Location: Í Noregi, Mjøndalen
                                      • Status: offline
                                      Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 21:33 (permalink)
                                      Spánn áttu þetta skilið en Webb skeit uppá bak í dag. Ósamkvæmur sjálfum sér, sleppti rauðu á Jong og Puyol(þegar hann hékk í Robben í lok leiks) sem og að Xavi og Iniesta gátu veifað höndum í sífellu og heimtað spjöld án þess að fá tiltal. Mér skyldist að reglan væri sú að ef menn gerðu það þá ættu þeir að fá gult no metter what.

                                      Eins átti Robben að fá seinna gula þegar hann sparkaði tuðrunni í burtu og fyrst Heitinga fékk rautt þá átti Puyol að fá rautt. Eini munurinn var sá að Hollendingar reyndu þó að standa í lappirnar á meðan Spánverjar gripu öll tækifæri til að falla. Týpiskt spænskt en svona er þetta.
                                      Stuðningsmaður Liverpool, Napoli og Dortmund. Ný tippkeppni og fantasy leikur.

                                       
                                        Le Drum

                                        • Total Posts : 1018
                                        • Joined: 11.12
                                        • Location: Ásbrú
                                        • Status: offline
                                        Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 21:43 (permalink)
                                        Það má ekki taka af Spánverjum að þeir nýttu loksins það sem þeim var rétt upp í hendurnar.

                                        Webb dæmir ótrúlega illa og fyrirskipar markspyrnu í stað þess að dæma réttilega horn á Spán.

                                        Maður þurfti ekki einu sinni endursýninguna til þess að sjá það.
                                        Q: Why can' t you get a cup of tea at Old Trafford? A: All the mugs are on the field and all the cups are at Anfield.
                                         
                                          Jobbi

                                          • Total Posts : 6102
                                          • Joined: 27.12
                                          • Location: heima hjá mér
                                          • Status: offline
                                          Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 21:46 (permalink)
                                          Howard Webb er lélegur dómari og fyrir mér er óskiljanlegt að hann fái að dæma á stórmóti og í cl.
                                          Áfram Liverpool
                                           
                                            Spector

                                            • Total Posts : 2342
                                            • Joined: 05.06
                                            • Location: Garðabæ
                                            • Status: online
                                            Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 21:56 (permalink)
                                            Það gera allir dómarar mistök og það er í rauninni ekki til neinn sem gerir ekki mistök.. Webb er án efa einn af bestu dómurum í heiminum í dag. Nokkur atriði sem hann dæmdi illa í dag en þetta var ekki beint léttur leikur fyrir dómara þar sem leikmenn voru mikið að tækla og nánast öll spjöldin voru hárrétt.

                                            Robben getur sjálfum sér kennt að hafa ekki nýtt þessi tvö dauðafæri sem hann fékk. Ég vonaðist eftir að Holland myndi vinna í kvöld en Spánn eru einfaldlega með besta landslið í heimi og ég reikna með að þeir vinni Em eftir 2 ár.
                                            "What does a Liverpool fan do after watching his team win the Premiership ? Turns the playstation off and goes to bed."
                                             
                                              suso

                                              • Total Posts : 692
                                              • Joined: 02.04
                                              • Status: offline
                                              Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 22:23 (permalink)
                                              Júlli


                                              Eini munurinn var sá að Hollendingar reyndu þó að standa í lappirnar á meðan Spánverjar gripu öll tækifæri til að falla. Týpiskt spænskt en svona er þetta.
                                               


                                              fáranlegt að þú sért að segja þetta. eina skiptið í heiminum sem Robben hefði ekki látið sig í færinu. Hollendingar voru ekkert skárri en Spánverjar í því að láta sig detta. Spánverjarnir gátu ekkert annað en dottið því Holland spilaði svo hart af þeim. Þeir eru Snillingar í fótbolta en þeir eru nú engin ofurmenni og geti flogið úr tæklingum. 


                                              viva espana




                                               
                                                víðförull

                                                • Total Posts : 1024
                                                • Joined: 02.02
                                                • Status: offline
                                                Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 23:01 (permalink)
                                                Hollendingar voru mjög grófir í dag og Jong átti að fá beint rautt fyrir karate sparkið í bringu Alonso.
                                                Mjög erfiður leikur að dæma og flest spjöldin rétt nema Jong (beint rautt)
                                                Fannst lítið hægt að setja út á Webb þótt ekki væri þetta gallalaus dómgæsla hjá honum, var samkvæmur sjálfum sér sem er jú mikilvægt hjá dómurum og ekki hallaði á annað liðið.

                                                En heilt yfir Spánn vann mjög verðskuldaðan sigur í dag og eru bestir í heiminum enginn vafi.
                                                Eitt að lokum vona að Torres sé ekki að byrja aðra meiðslatörn??
                                                One of these day´s I´m going to cut you in to little pieces
                                                 
                                                  Baboko

                                                  • Total Posts : 7346
                                                  • Joined: 17.07
                                                  • Location: Denver
                                                  • Status: offline
                                                  Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 23:03 (permalink)
                                                  Jobbi


                                                  Howard Webb er lélegur dómari og fyrir mér er óskiljanlegt að hann fái að dæma á stórmóti og í cl.


                                                  Sammála! Óskiljanlegt að hann hafi dæmt leik sem þennan.
                                                   
                                                  Gummi Ben er legend!
                                                   
                                                    Keyser Söze

                                                    • Total Posts : 701
                                                    • Joined: 26.05
                                                    • Status: offline
                                                    Re:Leikir dagsins 11. júl. 10 23:36 (permalink)
                                                    Júlli


                                                    Spánn áttu þetta skilið en Webb skeit uppá bak í dag. Ósamkvæmur sjálfum sér, sleppti rauðu á Jong og Puyol(þegar hann hékk í Robben í lok leiks) sem og að Xavi og Iniesta gátu veifað höndum í sífellu og heimtað spjöld án þess að fá tiltal. Mér skyldist að reglan væri sú að ef menn gerðu það þá ættu þeir að fá gult no metter what.

                                                    Eins átti Robben að fá seinna gula þegar hann sparkaði tuðrunni í burtu og fyrst Heitinga fékk rautt þá átti Puyol að fá rautt. Eini munurinn var sá að Hollendingar reyndu þó að standa í lappirnar á meðan Spánverjar gripu öll tækifæri til að falla. Týpiskt spænskt en svona er þetta.



                                                    Please!
                                                    Beauty is pain... enda er ég með stanslausa verki í öllum líkamanum.
                                                     
                                                      Baboko

                                                      • Total Posts : 7346
                                                      • Joined: 17.07
                                                      • Location: Denver
                                                      • Status: offline
                                                      Re:Leikir dagsins 12. júl. 10 00:51 (permalink)
                                                      Keyser Söze


                                                      Júlli


                                                      Spánn áttu þetta skilið en Webb skeit uppá bak í dag. Ósamkvæmur sjálfum sér, sleppti rauðu á Jong og Puyol(þegar hann hékk í Robben í lok leiks) sem og að Xavi og Iniesta gátu veifað höndum í sífellu og heimtað spjöld án þess að fá tiltal. Mér skyldist að reglan væri sú að ef menn gerðu það þá ættu þeir að fá gult no metter what.

                                                      Eins átti Robben að fá seinna gula þegar hann sparkaði tuðrunni í burtu og fyrst Heitinga fékk rautt þá átti Puyol að fá rautt. Eini munurinn var sá að Hollendingar reyndu þó að standa í lappirnar á meðan Spánverjar gripu öll tækifæri til að falla. Týpiskt spænskt en svona er þetta.



                                                      Please!


                                                      Please hvað? Ekki reyna halda því fram að það sem Júlli er að segja sé bull?
                                                       
                                                      Gummi Ben er legend!
                                                       
                                                        Keyser Söze

                                                        • Total Posts : 701
                                                        • Joined: 26.05
                                                        • Status: offline
                                                        Re:Leikir dagsins 12. júl. 10 01:44 (permalink)
                                                        Bull eða ekki bull. Hann var greinilega samkvæmur sjálfum sér fyrst hann rak hvorki De Jong né Puyol ekki satt? Þrátt fyrir að það hafi verið 100% rautt á De Jong. Og ekki reyna að halda því fram að Heitinga hafi ekki átt skilið rautt. Ég ætla ekki að verja Puyol en Robben færði sér það ekki nógu vel í nyt (léti sig falla í 99.99999999% tilfella og það væri = rautt) og hann hafði tíma og hefði getað gert mikið betur fyrst hann ákvað að standa!

                                                        Ég er sammála því að menn eigi ekki að komast upp með að heimta spjöld í leikjum en ég hef ekki einu sinni séð dæmt á það í þessu móti, sama hjá hvaða liði. Og að taka Xavi og Iniesta sérstaklega út fyrir það er í besta falli kjánalegt. Robben, Snejder og fleiri voru nákvæmlega ekkert skárri. Og sá allra versti í öllu mótinu í svona löguðu er enginn annar en Mark Van Bommel! Hann sýndi af sér skítahegðun í hverjum einasta leik í þessu móti og hefði með réttu átt að fá rautt í hverjum einasta leik í mótinu. 

                                                        Og það er augljóst að appelsínugulu gleraugun hans Júlla í þessum leik voru í sterkari kantinum ef hann ætlar að halda því fram að aðeins Spánverjar hafi hent sér niður við hvert tækifæri. Fyrir utan það að Hollendingar voru hreint og beint grófir!

                                                        Bommel, Heitinga, Robben og De Jong hefðu með réttu átt að fá rautt og svo Puyol. Vá hvað það hallaði á Holland maður!!!
                                                        Beauty is pain... enda er ég með stanslausa verki í öllum líkamanum.
                                                         
                                                          Júlli

                                                          • Total Posts : 20889
                                                          • Joined: 17.01
                                                          • Location: Í Noregi, Mjøndalen
                                                          • Status: offline
                                                          Re:Leikir dagsins 12. júl. 10 07:12 (permalink)
                                                          Keyser Söze


                                                          1. Bull eða ekki bull. Hann var greinilega samkvæmur sjálfum sér fyrst hann rak hvorki De Jong né Puyol ekki satt?
                                                          2. Þrátt fyrir að það hafi verið 100% rautt á De Jong.
                                                          3. Og ekki reyna að halda því fram að Heitinga hafi ekki átt skilið rautt.
                                                          4. Ég ætla ekki að verja Puyol en Robben færði sér það ekki nógu vel í nyt (léti sig falla í 99.99999999% tilfella og það væri = rautt) og hann hafði tíma og hefði getað gert mikið betur fyrst hann ákvað að standa!

                                                          5. Ég er sammála því að menn eigi ekki að komast upp með að heimta spjöld í leikjum en ég hef ekki einu sinni séð dæmt á það í þessu móti, sama hjá hvaða liði.
                                                          6. Og að taka Xavi og Iniesta sérstaklega út fyrir það er í besta falli kjánalegt. Robben, Snejder og fleiri voru nákvæmlega ekkert skárri. Og sá allra versti í öllu mótinu í svona löguðu er enginn annar en Mark Van Bommel! Hann sýndi af sér skítahegðun í hverjum einasta leik í þessu móti og hefði með réttu átt að fá rautt í hverjum einasta leik í mótinu. 

                                                          7. Og það er augljóst að appelsínugulu gleraugun hans Júlla í þessum leik voru í sterkari kantinum ef hann ætlar að halda því fram að aðeins Spánverjar hafi hent sér niður við hvert tækifæri. Fyrir utan það að Hollendingar voru hreint og beint grófir!

                                                          8. Bommel, Heitinga, Robben og De Jong hefðu með réttu átt að fá rautt og svo Puyol. Vá hvað það hallaði á Holland maður!!!


                                                          1. Þú berð ekki saman De Jong og Puyol atvikið þú berð saman atvikið hjá Puyol og Heitinga þegar litið er á það brotalega séð. Ég sagði og ég kvóta "sleppti rauðu á Jong og Puyol" og svo í framhaldi af því kom þetta hér: "fyrst Heitinga fékk rautt þá átti Puyol að fá rautt." Þarf ég að útskýra þetta fyrir þér betur? De Jong atvikið er af allt öðrum toga en Heitinga og Puyol sem voru sömu atvik nema að Iniesta sem nota bene lá sárþjáður á köflum þó engar snertingar væru lá en ekki Robben. Þarna er dómarinn ekki sjálfum sér samkvæmur og þú hlýtur að sjá það. Alltaf rautt(seinna gula) á Heitinga og fáránlegt að Puyol hafi ekki fengið það sama bara af því að leikmaðurinn sem hann hékk í lét sig ekki falla.

                                                          2. Já átti að vera rautt á De Jong, sagði einhver eitthvað annað?

                                                          3. Nei ég gerði það ekki, hvar sástu það?

                                                          4. Það er nákvæmlega það sem þú ert að gera, þú ert að verja Puyol því Robben fellur ekki. Ég les það allavegana útúr þessu hjá þér.

                                                          5. Rétt hjá þér en þeir leikir sem ég hef séð hjá Spáni þá hafa einmitt Iniesta og Xavi verið duglegri en flestir við að veifa hendinni.

                                                          6. Af hverju getur þú ekki haldið þig við þennan leik? Í þessum leik, úrslitaleiknum voru Xavi og Iniesta alltaf hreint að heimta spjöld á meðan að Hollendingarnir voru mun rólegri á þeim nótum þó að Robben hafi vissulega gert það. Ég hef líka sagt að Robben átti að fá rautt því t.d. sparkaði hann tuðrunni í burtu í framlengingu. Hann fékk ekki gult en leikmaður Spánar fékk gult fyrir það sama, sem sagt Webb skeit uppá bak.

                                                          7. Blessaður hættu nú þvaðri um hvaða gleraugu menn eru með. Ég held með Þjóðverjum og svo styð ég öll lið gegn Spáni en er langt frá því að hafa appelsínu gul gleraugu. 28-19 í aukaspyrnum og spánverjar féllu auðveldlega í mörgum tilfellum. Meira að segja konan mín sem hatar fótbolta og hefur lítið vit á þessu og horfði á þetta með öðru spurði oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, hvað er að manninum, það kom enginn við hann og átti hún þá við Iniesta. Fyrst þegar enginn kom við hann og svo þegar hann lét sig falla þegar hann sjálfur steig ofan á Heitinga.
                                                          Hollendingar voru oft harðir en spánverjar voru eins og þeir eru bestir, liggjandi í grasinu við hvert tækifæri.

                                                          8. Í fyrsta lagi þá er ég búinn að segja að spjaldið sem Heitinga fékk var rétt, De Jong átti að fá rautt og síðar Robben. En að þú sért svona ótrúlega illa að þér og viljir bara gefa Puyol rautt sýnir að þú ættir að þegja um gleraugu annarra. Xavi, Iniesta og Capadevlli eða hvað hann heitir báðu allir um spjöld, feikuðu meiðsli og þeir voru ekki þeir einu hjá Spánverjum.

                                                          Svo spyr ég hvar sagði ég að það hefði hallað að Hollandi? Ég sagði að Webb hefði skitið uppá bak sem hann gerði. Bæði með því að halda De Jong og Robben inni sem og að margir spánverjarnir komust upp með leikaraskap. Ef þú sérð það ekki þá ættir þú kannski ekki að ræða fótbolta því það er á hreinu að þú í fyrsta lagi skilur ekki það sem aðrir segja og í öðru lagi þá ásakar þú menn um einhver gleraugu þegar þú ert svo litaður sjálfur að þú sérð  ekki í gegnum þín gleraugu.
                                                          Webb var lélegur og það er staðreynd.
                                                          Stuðningsmaður Liverpool, Napoli og Dortmund. Ný tippkeppni og fantasy leikur.

                                                           
                                                            Baboko

                                                            • Total Posts : 7346
                                                            • Joined: 17.07
                                                            • Location: Denver
                                                            • Status: offline
                                                            Re:Leikir dagsins 12. júl. 10 12:21 (permalink)
                                                            http://www.liverpoolfc.tv...ic-you-ll-see-all-year Staðfesting um það að Þorsteinn J. og félagar vita ekkert.. Hjörvar hélt því fram að enginn leikmaður Liverpool hafi unnið HM áður, nema Riddle sem vann einhverntíman en var ekki leikmaður Liverpool þá, en í þessari frétt segir.

                                                            Torres and Pepe Reina will now return to Melwood after a few weeks' holiday having becoming only the fourth and fifth LFC players to win the World Cup after 1966 trio Roger Hunt, Gerry Byrne and Ian Callaghan.
                                                             
                                                            Gummi Ben er legend!
                                                             
                                                              Online Bookmarks Sharing: Share/Bookmark
                                                              Change Page: < 12345678910 > | Showing page 9 of 10, messages 241 to 270 of 273

                                                              Jump to:

                                                              Current active users

                                                              There are 0 members and 1 guests.

                                                              Icon Legend and Permission

                                                              • New Messages
                                                              • No New Messages
                                                              • Hot Topic w/ New Messages
                                                              • Hot Topic w/o New Messages
                                                              • Locked w/ New Messages
                                                              • Locked w/o New Messages
                                                              • Read Message
                                                              • Post New Thread
                                                              • Reply to message
                                                              • Post New Poll
                                                              • Submit Vote
                                                              • Post reward post
                                                              • Delete my own posts
                                                              • Delete my own threads
                                                              • Rate post

                                                              2000-2012 ASPPlayground.NET Forum Version 3.9