Re:Football Manager 2012
10. feb. 12 22:59
(
permalink)
Ætla að koma með update úr nýjasta saveinu mínu.
Ákvað að holidaya eitt season og taka við einhverju liði sem átti í basli fyrsta tímabilið. Inter Milan varð fyrir valinu en þeir enduðu í 5. sæti í Serie A.
Eins og flestir vita þá er þetta lið á elliárunum (bókstaflega) og á ALLTOF háum launum. Held ég hafi talið 9 leikmenn sem voru á 100.000+. Alveg 5 á 150.000 og 2 á 200.000!
Ég gjörsamlega gjörbreytti liðinu og seldi allt sem átti ekkert erindi í liðið og fjárhagurinn er kominn í frábært stand miðað við fyrri aðstæður.
Út fóru:
Ricardo Alvarez, Yuto Nagatomo, Julio Cesar, Walter Samuel, Jonathan, Sulley Muntari, Luc Castaignos, Maicon, Esteban Cambiasso, Luca Castellazzi, Lúcio, Thiago Motta, Emiliano Viviano, Joel Obi, Giovanni Cristofari, Andrea Mei, Giampolo Pazzini, Jádson, Diego Milito, Rodrigo Alborno, Cristian Chivu, Goran Pandev.
Leyfði 22 leikmönnum að fara án greiðslu að auki. Þetta eru um 43 leikmenn samanlagt sem yfirgáfu félagið fyrir 138M evrur. (Ég highlightaði þá sem voru með 100k+ í laun)
Helstu sölur: Maicon (33M), Cesar (25M), Cambiasso (15M), Jadson (15M).
Ég fékk til mín 18 leikmenn á samanlagt 88M evrur sem er flottur plús í glugganum.
Mbaye Niang, Yaroslav Rakitskyi, Andrea Poli, Matthias Ostrzolek, Xherdan Shaqiri, Ricardo Kishna, Johan Martial, Abdel El Kaoutari, Sime Vrsaljko, Mestapha Laigneau, G Wijnaldum, Thibaut Courtois (lán), Alex Chamberlain (lán), Michael Essien (lán to buy), Moussa Sow, Jack Wilshere (lán), Samir Handanovic.
Ég fæ síðan Willian, Eriksen og Ter Stegen eftir eitt ár.
Dýrustu kaup voru: Moussa Sow (13M), Handanovic (11M), Rakitskyi (10M), Wijnaldum (10M). Willian kemur síðan á 14M.
Lækkaði launaseðilinn um rúma milljón evra á viku sem ég tel flottan árangur. Ég á ennþá eftir að losa mig við Zanetti, Forlán, Stankovic og Paolo Cannavaro sem eru á þrusulaunum.
Af nýju leikmönnunum er hæsti með 46 þúsund á viku. Það fara 524 þúsund á viku í leikmenn sem ég hreinlega vill ekkert hafa í liðinu mínu.
Sneijder 200k, Stankovic 100k, Zanetti 100k, Forlán 73k, Ranocchina 51k. Ætla að halda Sneijder í eitt ár og kaupa Gylfa í stað hans.
Sow er kominn með 3 mörk í fyrstu 3 leikjunum og lookar bara vel. Niang kemur inná og skorar í fyrsta leik og ég vann fyrsta leik í deild 4-0. Fór framhjá Molde í undankeppni Euro Cup 4-1 samanlagt.
Takk fyrir að lesa endalausa póstinn minn !