Þann 5 janúara síðastliðinn birtist pistill á vefsíðunni fotbolti.net undir nafninu
"Varúð lið með sjálfseyðingahvöt". Þegar svona grípandi fyrirsögn birtist þá að sjálfsögðu kíkir maður á það og les. Þegar ég var búinn að lesa þennan pistill þá sá ég hlutina í nýju ljósi. Hluti sem ég hafði áður séð öðruvísi. Ég er að sjálfsögðu að tala um hið leiðinlega mál Evra vs Suarez. Eins og hann kemur klárlega inná í þessum pistill þá sagði Suarez orð sem hann hefði betur sleppt því að segja.
Framkoma Liverpool í þessu máli var til skammar á eiginlega allan hátt og einnig var félagið bara í tómu tjóni mest allan tíman sem þetta mál fór fram. Enda voru þeir að verja málstað sem flestir hafa fyrirlitningu á. Það að leikmaður þeirra hafi gerst sekur um kynþáttafordóma er alvarlegt. Að sjálfsögðu ver Liverpool manninn en hins vegar er alltaf spurning hversu langt það á að ganga. Þeir eiga klárlega að redda honum þá hjálp sem honum vantar. En að fara í fjölmiðla og reyna sverta mannorð Evra er auðvita ótrúlegur asnagangur og ekki í takt við minn skiling á the Liverpool way. Ef Liverpool hefði viljað vinna þetta mál hefðu þeir að sjálfsögðu sannreynt sínar sögur, áður en þeir færu til dómarans. Að auki myndu þeir ekkert tala um þetta mál í fjölmiðlum, enda gæti það komi illa út ef Suarez myndi dæmast sekur. En hann varð auðvita sekur og því mun Liverpool líta rosalega illa út. Það er ekki hægt að loka augum fyrir því að Liverpool varði mann sem var ásakaður með kynþáttaníð gagnvart svörtum manni. Það eitt og sér ætti að vera nóg til að reka PR fulltrúa félagsins. Þetta er ótrúleg mistök og algjört klúður frá upphafi til enda. Á endanum hefur Henry og co sem eiga félagið tekið í taumana og bannað því að áfrýja og að verja vonlaust mál frekar. Jafnvel eftir að Liverpool ákvað ekki að áfrýja hefur félaginu tekist að gera sig að aðhlátursefni í fjölmiðlum í Englandi. Enda með fáranlegri yfirlýsingu sem sérst hefur og rosalega bitur. Ef allt væri svona ósanngjarnt þá ætti Liverpool að kæra þetta til evrópudómsstólsins í Sviss. En ekki tala um það og hóta FA um að þeir muni kannski kæra þá. Sértaklega ekki tala um það í gegnum fjölmiðla.
Margir sögðu ætla að fyrirlíta Suarez ef hann myndi vera dæmdur sekur, þeir hinu sömu komu hins vegar Suarez til varnar eftir að dómur hafði fallið. Sögðu að hann hefði ekkert gert, Evra væri **** og að þetta væru nornveiðar Ferguson gagnvart Liverpool. Ég viðurkenni fúslega að ég var einn af þeim. Hins vegar hef ég hugsað minn gang og pælt mikið í þessu máli. Það verður að segjast alveg eins og er að þetta er allt hið leiðinlegasta mál. Suarez er dæmdur í 8 leikja bann og það að Liverpool hafi ekki áfrýjað banninu segir meira en mörg orð. Ég held að við Liverpool menn verðum bara að sætta okkur við það að Suarez, þótt skemmtilegur leikmaður og góður í fótbolta, er sekur í þessu máli. Hann sagði ákveðin orð um litarhátt Evra og því er hann dæmdur. Þetta er ekki FA að dæma hann því hann er að díva sér í ensku deildinni eða til að klekkja á honum og passa að hann leiki ekki gegn Man Utd. Þeir dæma hann vegna þess þeir höfðu sannanir. Þetta er ansi hart leikbann, frekar strangt að mínu mati en knattspyrnusambandið verður að sýna fordæmi. Þeir mega ekki segja að svona hlutir séu bara í lagi. Suarez á bara að vita betur, hefur búið í Hollandi áður en hann flutti til Englands. Suarez sagði að hann kallaði Evra bara því sem FÉLAGAR hans kalla hann. Það er málið, Suarez og Evra eru engir vinir og því átti Suarez bara að sleppa því að segja þetta.
Svo að lokum skulum við tala um Suarez bolina svokölluðu. Þvílík mistök sem þeir voru, kjánalegir og mjög barnaleg hegðun að Liverpool skuli klæðast svona bolum. Þessir bolir urðu svo ennþá kjánalegir eftir að Liverpool ákvað að áfrýja ekki. Bolirnir fengu svo dökka hlið á föstudaginn þegar menn íklæddir þessum bolum voru með kynþáttafordóma gegn þeldökkum leikmanni Oldham. Mér er alveg sama hvað hver segir, en félagið hefur frekar mikið ýtt til þess að láta menn vera með fordóma á leikjum. Þeir styðja mann fram í rauðan dauðan sem var með fordóma, tapa því áfrýja ekki og því er skaðinn skeður. Þetta er í raun alveg ömurlegt og ég trúi ekki að félagið sem ég hef stutt frá því ég man eftir mér skuli vera með svona afskaplega lélega PR fulltrúa sem tókst í þessu máli að rústa ímynd félagins á örskot stundu. Það þarf enginn að segja mér að þetta mál verði ekki sett upp á baksíðum blaðanna þegar þeldökkamenn eru orðaðir við Liverpool. Spurning hvort það sé jafn freistandi að fara til Liverpool þegar félagið hefur opinberlega stutt mann sem var með kynþáttaníð.
Svona í lokin þá er fáranlegt að ekki hafi verið gefin út yfirlýsing og tilkynnt að PR fulltrúa Liverpool hafi verið sagt upp störfum. Það væru fréttir sem myndu gleðja flesta sem tengjast Liverpool.
Lítum fram á veginn stuðingsmenn Liverpool, Suarez gerði sig sekan um mikinn asnaskap og ****a hátt. Menn eiga því að líta fram hjá þessu bulli og styðja liði. Suarez verður svo að sanna sig upp á nýtt hjá aðdáendum Liverpool og sértaklega að hunsa allt bulið sem mun fara fram á völlum á Englandi gagnvart honum það sem eftir er tímabilsins.
Að lokum vil ég segja að ég mun aldrei segja að Suarez sé rasisti, en hann var klárlega með fordóma og það var þess vegna sem hann var dæmdur. Ég veit einnig að flestir ykkar verði mér ósammála en þetta er mín skoðun og mín sýn á þetta mál.
Með virðing og vinsemd í huga.
Fuglinn