
Tveir leikmenn inn og fimm leikmenn farnir (staðfest)
Seinast uppfært: 13. Júlí 2011
Í dag boðaði McCormick blaðamannafund til að kynna tvo leikmenn sem voru gengnir til liðs, þeir Jay Spearing og Birkir Bjarnason, hann sagði í leiðinni að Andy Griffin og Brynjar Gunnarsson væru farnir til Sheffield Wednesday, Ian Harte til Peterborough, Brian Howard til Southampton og Mikkel Andersen heim til Kobenhavn.
Jay Spearing er 22 ára Englendingur uppalinn hjá Liverpool, hann er miðjumaður og er hann mjög vinnusamur. Kaupverðið er talið vera rétt undir milljón pundum en ekkert var staðfest. Hann skrifaði undir fjögur ára samning sem skilar honum 21 þúsund pundum á viku. Hann er mjög lágvaxinn og er hann aðeins 168 cm á hæð.

Birkir Bjarnason kemur á 825 þúsund sterlingspund frá Viking í Noregi en hann átti aðeins hálft ár eftir af samningnum þannig Viking neyddist til að selja hann ódýrara en þeir hefðu viljað. Birkir er 23 ára Íslendingur sem er mjög fjölhæfur, hann getur spilað inn á miðju, í holunni og á báðum könntunum. Birkir skrifaði einnig undir fjögur ára samning og mun hann fá 14500 pund á viku.

McCormick
Ég er ánægður með að hafa fengið þessa stráka, þeir eru flottir fótboltamenn sem munu smellpassa inn í liðið mitt, við þurfum enn að styrkja nokkrar stöður sérstaklega þar sem við erum að losa okkur við marga eldri leikmenn, ég mun einnig ekki fá mér neinn hvort sem það er á lán eða kaup sem er eldri en 23 ára, ég ætla að byggja upp lið fyrir framtíðina sem mun geta spilað mjög vel bæði í Championship og Premier league þar sem við setjum stefnuna augljóslega á þá deild.
<message edited by Gummi#5 on 19. jan. 12 23:35>