Spjallborðið

 Ástandið á LIVERPOOL í dag ;(

Author Message
Sigueina

  • Total Posts : 2259
  • Joined: 30.05
  • Status: offline
Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 19:50 (permalink)
Nú veit ég að margir Liverpoolaðdáendur eru brjálaðir eftir leik dagsins en ég skal segja ykkur smá fréttir, það sem þið eruð að horfa á er ekki tilviljun, er ekki óheppni og er ekki hægt að skíla sér bakvið það að Lucas og Suarez eru ekki með(meiðsli og leikbönn hluti af leiknum).
Fyrir tímabilið þá setti maður stefnuna á 4.sætið. Ég gerði mér vonir um að við myndum berjast við Arsenal og Tottenham um þetta sæti. Liðið var að bæta við sig nokkrum mönum sem ég var spenntur fyrir en því miður þá hefur komið í ljós að þeir eru ekki spennandi leikmenn.
Andy Carroll(kom reyndar fyrir 1 ári en var minna og meira meiddur og var þetta fyrsta alvöru runið hjá honum í liðinu á þessu tímabili). Ég er búinn að segja það lengi að þessi maður er algjört drasll. Ég skrifaði grein hérna fyrir 2-3 mánuðum að það væri betra að vera með P.Crouch heldur en þenna mann. Crouch skorar eitt og eitt og er með miklu meiri tækni, er duglegri og hefur meiri leikskilning. Carroll er latur, enga boltatækni og ég er jafn líklegur og hann að skora í leikum.
C.Adam  þetta var leikmaður sem ég var spenntur fyrir, eftir að hann var orðaður við okkur þá fór ég að horfa á alla Blackpool leikina og fannst hann flottur þar og hugsaði með mér að ef hann hefði betri leikmenn í kringum sig þá myndi hann verða enþá betri. Hann hefur verið gríðarleg vonbrigði. Hans strórkostlegi vinstri fótur hefur ekki látið sjá sig, hann er hægur og sendingarnar sem hann var þekktur fyrir hafa einfaldlega ekki verið að gera sig.
Stuard Downing loksins kanntmaður sem getur eitthvað. Hann hefur ekki farið vel af stað en ólíkt hinum þá hef ég enþá smá trú á þessum strák, hann hefur verið að leggja upp nokkur færi á þessari leiktíð sem menn hafa verið að klúðra og hefur verið áræðin. Ég vona að við höldum honum en hann þarf að fara að gera betur.
C. Bellamy  einfaldlega búinn að vera góður fyrir okkur
Jose   er einfaldlega búinn að vera solid fyrir okkur og virkar sem góð kaup.
 
Við erum búnir að vera með nokkuð góða vörn á þessari leiktíð og Reina hefur farið úr því að vera frábær í að vera ágætur(alltof mörg klúður á þessari leiktíð).
Miðjan er búinn að vera hörmung, hún getur haldið boltanum en er ekki að skapa nein færi og geta lið einfaldlega bakað á móti okkur og verið viss um að fá að minstakosti 1 stig.
Sóknin er bara Suarez og hann hefur verið góður en má nýtta færinn betur.
 
s.s við eru með fullt lið af miðlungsleikmönum  C.Adam, Henderson, Kuyt, Maxi, Carroll sem eru einfaldlega að spila stórthlutverk í okkar liði á þessari leiktíð. Allir þessir leikmenn kæmust ekki á bekkinn hjá liðunum fyrir ofan okkur. 
Ég horfði á Liverpool - Stoke um daginn og sagði fyrir leik að þetta væri 100% 0-0 leikur, það var engin að fara að skora fyrir okkur og þeir reyna ekki að sækja. Sú var raunin. Þetta er auðvita hálf sorglegt að horfa uppá þetta en það er lítið hægt að gera í þessu núna. Ég held að Daglish þarf að taka aðrar eins hreinsarnir hjá liðinu í sumar og reyna að detta í lukkupottinn og fá 1-2 leikmenn sem geta virkilega hjálpað liðinu.
 
Nú er bara eina vonin að reyna að komast í deildarbikarúrslitaleikinn og að reyna að slá út Man utd í FACup. Ég veit að það er ekki langt í 4.sætið í deildini en með þetta lið þá erum við einfaldlega ekki að ná því. Það eru ofmargir farþegar í liðinu.
Lífið er Fótbolti
 
#1
    Kiddi1

    • Total Posts : 2149
    • Joined: 03.03
    • Location: Danmörk
    • Status: offline
    Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 20:12 (permalink)
     
    Ágætur póstur hjá þér. Hægt að taka undir margt en ég get ekki verið sammála því að það skipti ekki máli að missa besta mann liðsins og burðarás. Og þá er ég að tala um Lucas.
     
    Annars held ég að það sé ekki einfalt mál að finna ástæður fyrir þvi af hverju liðið sé að spila illa. Þær geta verið svo margar að það væri of langt mál að telja þær upp hérna.
     
    Ég er alls ekki á því að láta KD fara, gefa honum að minnsta kosti tíma út tímabilið. Og jafnvel annað ár. Hann kann þetta alveg kallinn en þarf bara að finna taktinn held ég.
     
    Og já Carroll hefur bara verið algjört drasl.
     
    Ég var að skoða stigatöfluna. Við erum í 7. sæti og af 13 liðum sem eru fyrir neðan okkur hafa 6 skorað fleiri mörk en við og eitt hefur skorað jafnmikið. Hin öll nema Wigan eru mjög nálægt okkur í markaskorun. Ekkert þeirra hefur hinsvegar fengið færri mörk á  sig en við.
     
    Það er alveg ljóst og ekki nýjar fréttir að við þurfum að styrkja sóknina ef ekki á illa að fara.
     
     
    En ég get reyndar ekki sagt að ástandið sé svo hrikalegt. Við erum ennþá bara 6 stigum frá 4. sætinu og eigum alveg möguleika á að berjast um það ef við hysjum upp um okkur brækurnar. En ég efast um að það gerist án þess að liðið verði styrkt núna í jan.
    Þegar manni er mesta reiðin runnin eftir leik dagsins þá verður maður að viðurkenna að staðan er bara alls ekki fjarri því að vera sem búast mátti við. Liðin fyrir ofan okkur eru öll nema Arsenal og Newcastle með miklu sterkari leikmannahóp heldur en Liverpool. Endu eru ArsogNew á mjög svipuðu róli og við.
    <message edited by Kiddi1 on 21. jan. 12 20:31>
    When I die, I want to go peacefully like my Grandfather did, in his sleep -- not screaming, like the passengers in his car
     
    #2
      Spector

      • Total Posts : 2402
      • Joined: 05.06
      • Location: Garðabæ
      • Status: offline
      Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 20:35 (permalink)
      Það sést bara að það eru alltof margir meðalmenn hjá Liverpool, nokkrir af þem sem voru látnir fara frá Atletico, City og Chelsea.. Nánast enginn af leikmönnum Liverpool myndi komast í liðið hjá Tottenham, Arsenal, Chelsea, City eða United.
       
      Flest öll kaupin hjá Daglish hafa verið flopp, spurning hvort að hann hafi ekki verið full lengi í fríi frá boltanum. Suarez og Enrique eru þeir einu sem hafa eitthvað getað að mínu mati af þeim leikmönnum sem Daglish hefur keypt.
      Suarez þarf bara að hætta þessu tuði í hverjum einasta leik og þá fara mörkin að rigna inn hjá honum.
      Enrique er solid varnarlega en hann er ekkert sérstakur sóknarlega.
       
      Fyrir mér að þá eru Adam og Carroll bara Championship leikmenn. Báðir eiga það sameiginlegt að hafa átt fínt hálft tímabil með liðum sínum í fyrra.
      Henderson; hann er jú sagður vera efnilegur en hann hefur aldrei heillað mig, ekki hjá Sunderland né hjá Liverpool.
      Downing; hvernig stendur á því að maðurinn sé ekki en kominn með stoðsendingu eða skorað mark á þessu tímabili í PL? Maður sér hann voðalega sjaldan gefa bolta inn í teiginn, virðist frekar vilja gefa alltaf stutta sendingu til baka heldur en að gefa fyrir. Nú hef ég ekki verið að skoða tölfræðina hans neitt undanfarið en ég man að í deildarleik gegn City um daginn að þá átti hann ekki EINA fyrirgjöf allan leikinn en samt var Carroll fremsti maður, maður sem skoraði mest bara með skalla hjá Newcastle. Mér fannst United borga full mikið fyrir Young og að Downing skuli hafa kostað svipað er ótrúlegt.
       
      Annars finnst mér alveg ótrúlegt hvað Liverpool hafa skorað fá mörk á þessu tímabili, 25 mörk skoruð í 22 leikjum er bara vægast sagt sorglegt og liðin í 19 og 18 sæti hafa skorað fleiri mörk. Uppstillingin gegn Stoke sýnir kannski afhverju Liverpool er ekki að skora mörk.
       
      En ef ég þekki Liverpool rétt að þá eiga þeir eftir að eiga stórleik gegn City á þriðjudaginn og gegn United á laugardag. Því liðið virðist alltaf getað átt góða leiki gegn stóru liðinum sem eru hálfgerðir "FA Cup final" leikir fyrir liðið.
       
      Svo eitt að lokum, er Daglish að gera eitthvað mikið betri hluti heldur en Hodgson sem fékk engan tíma með liðið.
      "What does a Liverpool fan do after watching his team win the Premiership ? Turns the playstation off and goes to bed."
       
      #3
        Kiddi1

        • Total Posts : 2149
        • Joined: 03.03
        • Location: Danmörk
        • Status: offline
        Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 20:44 (permalink)
        Spector


        Það sést bara að það eru alltof margir meðalmenn hjá Liverpool, nokkrir af þem sem voru látnir fara frá Atletico, City og Chelsea.. Nánast enginn af leikmönnum Liverpool myndi komast í liðið hjá Tottenham, Arsenal, Chelsea, City eða United. 


        Arsenal? Arsenal gæti vel notað Agger,Skrtel,Enrique,Reina,Suarez og já Gerrard og Leiva þegar þeir eru heilir.Sama mætti segja um tottenham
        Þetta eru 7 leikmenn aðeins meira en nánast enginn.
         
        Ekki bulla.
         
         


        Svo eitt að lokum, er Daglish að gera eitthvað mikið betri hluti heldur en Hodgson sem fékk engan tíma með liðið.

         
        Munurinn er sá að Dalglish tók við liðinu í algjörri rúst eftir Hodgson.
        <message edited by Kiddi1 on 21. jan. 12 20:47>
        When I die, I want to go peacefully like my Grandfather did, in his sleep -- not screaming, like the passengers in his car
         
        #4
          Spector

          • Total Posts : 2402
          • Joined: 05.06
          • Location: Garðabæ
          • Status: offline
          Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 20:50 (permalink)
          Gerrard upp á sitt besta já en hversu langt er síðan hann var það?
           
          Arsenal gætu hugsanlega getað notað max 3 af þessum leikmönnum að mínu mati. Það má ekki gleyma því að Arsenal hafa lent í miklum meiðslum einsog United á þessu tímabili og það er ekki oft sem þeir hafa getað notað sína aðal varnarmenn. Tottenham eru með mikið betri mannskap heldur en Liverpool..  Veit ekki hvaða Liverpool leikmaður ætti að komast inn í það byrjunarlið.
           
          Var liðið ekki þegar orðið algjört rúst þegar Hodgson tók við þökk sé gömlu eigundunum og Benitez? Hodgson fékk ekki að eyða mikið á meðan Daglish hefur fengið að eyða.
          <message edited by Spector on 21. jan. 12 20:52>
          "What does a Liverpool fan do after watching his team win the Premiership ? Turns the playstation off and goes to bed."
           
          #5
            gazzi

            • Total Posts : 1279
            • Joined: 21.10
            • Status: offline
            Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 21:33 (permalink)
            Sko ég held með Tottenham eins og flestir vita hér held ég, og eins og staðan er í dag, myndi ég ekki taka við neinum leikmanni beint inn í byrjunarlið Tottenham frá Liverpool.
            En ef ég væri að kaupa fyrir næsta tímabil, myndi ég glaður taka við Reina og Suarez sem myndu verða starters á næsta ári og svo myndi ég líka taka við Enrique til þess að berjast við ekotto um sæti í liðinu. Lucas er klárlega góður leikmaður en ég vill hann ekki frekar en Parker, Sandro og Huddlestone. Lucas ætti erfitt með að komast í liðið.
             
            Semsagt engin myndi fara beint inn í byrjunaliðið en nokkrir kæmust í hóp. Suarez og Reina myndu gera tilkall. 
             
             
            #6
              Cenarius

              • Total Posts : 2126
              • Joined: 30.09
              • Status: offline
              Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 21:44 (permalink)
              Reina færi nú að gera meira en tilkall, sem og agger i tottenham, lucas og suarez en auðvita er stíll tottenham allt öðruvísi og hentar þessum leikmönnum vel eða ílla. en á móti kemur þá á tottenham modric, vdv, bale, lennon, krangjar og adi kæmust allir i lið liverpool svo það er ekki mikið eftir hjá okkur, það er egilega bara vörnin og markið
              hef verið stuðningsmaður Liverpool, Juventus, Real Madrid, Bayern Munich og San Antonio Spurs i gegnum súrt og sætt 
               
              #7
                Kiddi1

                • Total Posts : 2149
                • Joined: 03.03
                • Location: Danmörk
                • Status: offline
                Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 21:48 (permalink)
                Já ég er sammála að hópur Tottenham er sterkari á heildina litið en eins og Cenarius segir þá er Reina og Agger alltaf í byrjunarliði tott og svo Enrique og Suarez. 4 leikmenn tæp 40% af byrjunarliðinu.
                 
                Svo tæki ég alltaf Lucas framyfir Parker og SG komin úr meiðslum væri alveg nothæfur fyrir tottenham.
                When I die, I want to go peacefully like my Grandfather did, in his sleep -- not screaming, like the passengers in his car
                 
                #8
                  gazzi

                  • Total Posts : 1279
                  • Joined: 21.10
                  • Status: offline
                  Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 21:52 (permalink)
                  Cenarius


                  Reina færi nú að gera meira en tilkall, sem og agger i tottenham, lucas og suarez en auðvita er stíll tottenham allt öðruvísi og hentar þessum leikmönnum vel eða ílla. en á móti kemur þá á tottenham modric, vdv, bale, lennon, krangjar og adi kæmust allir i lið liverpool svo það er ekki mikið eftir hjá okkur, það er egilega bara vörnin og markið

                  Reina er ekki að gera betri hluti en Brad Friedel í dag. Agger er ekkert merkilegri en miðverðirnir okkar, Lucas er ekki betri en Parker og Sandro. Suarez kæmist í liðið á meðan Adebayor er að spila svona eins og í dag,en adebayor er frábær þegar hann er upp á sitt besta, sem er eki oft núna undanfarið. Suarez myndi samt henta svo miklu betur að vera í Tottenham heldur en Liverpool, það myndi koma mikið meira út úr honum hjá okkur að mín mati, þar sem að hann er creative leikmaður en Liverpool er ekki creative lið.
                   
                   
                  #9
                    gazzi

                    • Total Posts : 1279
                    • Joined: 21.10
                    • Status: offline
                    Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 21:53 (permalink)
                    Agger er ekki betri en King og Kaboul, drengir
                     
                    #10
                      Kiddi1

                      • Total Posts : 2149
                      • Joined: 03.03
                      • Location: Danmörk
                      • Status: offline
                      Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 21:59 (permalink)
                       
                      já það er hægt að deila um svona lagað út í eitt gazzi
                      When I die, I want to go peacefully like my Grandfather did, in his sleep -- not screaming, like the passengers in his car
                       
                      #11
                        gazzi

                        • Total Posts : 1279
                        • Joined: 21.10
                        • Status: offline
                        Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 21. jan. 12 22:36 (permalink)
                        rétt, þetta fer ekki lengra
                         
                        #12
                          Óli Haukur

                          • Total Posts : 2112
                          • Joined: 24.04
                          • Location: Akureyri
                          • Status: offline
                          Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 22. jan. 12 00:37 (permalink)
                          Ég veit ekki hvort ég hafi fengið of mörg högg á höfuðið í gegnum tíðina eða hafi hreinlega bara ekkert vit á fótbolta en mér persónulega finnst lið Liverpool og leikmannahópur liðsins í raun ekki vera neitt verri en hjá mörgum af þessum rival liðum.
                           
                          Þá er ég sérstaklega að tala um Chelsea og Arsenal. Spurs, Man Utd og Man City eru heilt yfir með betir og meira spennandi hópa en hin þrjú liðin, það er bara ekkert flóknara en það. Arsenal, Chelsea og Liverpool eru að mínu mati svo gott sem á pari þó eitt liðið sé með nokkura stiga forskot á hin tvö. Sama þótt Newcastle eigi ógeðslega góðan framherja sem leikur sér að því að skora mörk og keyptu flottan framherja í janúar þá eru þeir bara ekki á pari við hin liðin í gæðum en einhverja hluta vegna hanga þeir þarna líka.
                           
                          Í liði Liverpool eru nokkrir heimsklassa leikmenn og nokkrir í háum gæðaflokki, aðrir fínir, einhverjir mjög efnilegir og einhverjir sem eru líklega ekki nógu góðir í að vera byrjunarliðsmenn hjá Liverpool - ekki ef við tökum mið á frammistöðum þeirra hingað til.
                           
                          Síðasti sumargluggi var alls ekki alslæmur. Ég meina, leikmannahópur liðsins er töluvert sterkari en hann var í fyrra. Ekki spurning. Spilamennska liðsins í kjölfar allra félagsskiptana hefur breyst töluvert síðan þá, í stað þess að keyra á lið, nýta seinni bylgjurnar og pressa hátt þá er liðið byrjað að ætla að eigna sér leikina, halda boltanum og stjórna öllu. Sú aðferð er auðvitað frábær með réttu leikmönnunum, sjáum bara t.d. Barcelona (öfgadæmi) en það er bara á einhvern hátt ekki að ná árangri hjá Liverpool.
                           
                          Það er oft ógeðslega gaman og flott að sjá leikmenn liðsins á hreyfingu í kringum miðjuna og sjá þá byggja upp sóknirnar. Ein snerting, hlaup, lítið svæði og margar sendingar, þetta er helvíti flott að sjá en ekki áhrifaríkt fyrir sóknarmennina. Liverpool er með leikmenn sem þrífast einhvern veginn best af því að vera í hápressunni og ná krafti í seinni bylgjurnar, sjáum bara mörg mörk sem Liverpool skoraði eftir áramót í fyrra.
                           
                          Liverpool er oft of lengi að koma sér í sóknirnar og gefa mótherjanum færi á að "leggja rútunni" í vítateig sínum og á meðan Liverpool hefur ekki þennan "markaskorara af guðsnáð" í liðinu þá er þetta helvíti strembið. Ég vil persónulega sjá Liverpool með minna possesion en með hraðari og kröftugari sóknir, allavega með leikmannahópinn eins og hann er í dag.
                           
                          Í sumar voru keyptir fullt af áhugaverðum og góðum leikmönnum. Leikmenn sem hafa gert það gott í Úrvalsdeildinni í einhvern tíma, á fínum aldri og allt það. Ég hef alls ekkert á móti þeim Downing, Adam, Henderson og Carroll, þvert á móti. Í raun hef ég verið mikill aðdáandi þeirra lengi, þá sérstaklega Carroll og Downing. Ég sé alls ekkert að því að Liverpool skuli hafa keypt þá, og hina leikmennina líka, en það sem truflar mig svolítið við þau kaup eru fjárhæðirnar sem þeir voru keyptir á.
                           
                          55 milljónir punda fyrir þá Carroll og Downing, flottir leikmenn eins og ég segi og ekkert að því að hafa þá í Liverpool, er bara alltof, alltof mikill peningur fyrir þá. Ég reyni yfirleitt ekki að horfa á verðmiðana og finnst jákvætt að sjá að Liverpool leggi hart á sig við að ná leikmönnum sem þeir vilja og séu tilbúnir að "ofborga" til að fá þá. Höfum oft misst af góðum leikmönnum útaf því og flott að sjá að við séum tilbúnir að bæta það.
                           
                          110 milljónir punda hefur verið eytt (í raun aðeins 30 milljónum eða þar um bil af bankabók Liverpool vegna sölu á öðrum leikmönnum en hvað um það!) í tveimur félagsskiptagluggum og níu aðalliðsleikmenn keyptir. Svona miðað við þá leikmenn sem hafa verið keyptir þá er þetta svolítið mikill peningur ... ok, alltof mikill peningur. Alveg heilum 15-20 milljónum of mikið fyrir Carroll og líklega 5-10 milljónum punda of mikið fyrir Downing, hinir finnst mér hafa verið á fair verði. Sjáum það að þessar 20-30 milljónir punda sem fóru í að borga of mikið fyrir Carroll og Downing hefðu getað farið í að kaupa einn mjög góðan leikmann eða tvo til þrjá fínustu leikmenn. Þetta telur.
                           
                          Það er nett fúlt að þó það hafi verið eytt 110 milljónum punda á einu ári að þá er bara aðeins einn leikmaður sem hefur verið að setja almennilega mark sitt á liðið og sá leikmaður er í banni núna (Ok, Bellamy líka en hann kostaði ekki neitt, já og kannski Enrique líka). Enn í dag eru þeir sem eru að setja stærstu merkin á lið Liverpool, að Suarez undanskildum, leikmenn sem Rafa keypti á sínum tíma. Agger, Skrtel, Johnson, Reina og Lucas eru þeir sem eru í stærstum hlutverkum og búnir að vera meðal bestu leikmanna liðsins á leiktíðinni. Heimsklassa/hágæða leikmenn sem kostuðu ekki nema einhverjar 37 milljónir eða eitthvað samanlagt, alveg 15 milljónum minna en bara Carroll og Downing. Fúlt, já.
                           
                          Hefði Rafa getað gert betur með 110 milljónir punda? Ég ætla að leyfa mér að halda það, allavega í flest öll skipti sem hann fékk að eyða háum pening í aðalskotmark sitt þá endaði það vel (nema í tilfelli Keane og kannski Aquilani sem ég ætla að gefa benefit of doubt). Mascherano, Johnson, Torres, Alonso, Reina, Agger, Skrtel, Lucas, Kuyt, Arbeloa, Yossi, Bellamy, Garcia - þessi hópur af leikmönnum, sem ég tel hafa staðið sig mjög vel hjá Liverpool á þeim tíma sem Rafa var við stjórn, kostaði 110 milljónir punda. Töluvert sterkari hópur en Carroll, Downing, Suarez, Enrique, Henderson, Coates og Adam ekki satt?
                           
                          Fyrir 110 milljónir punda í leikmannakaup þá áttu að gera betur, það er allavega mitt mat. Liverpool er gott lið, engin spurning, en það virðist bara vanta einhvern neista eða gæði á einhverju sviði til að koma liðinu ofar og ég hef alveg trú á að það sé hægt. Svarið að mínu mati er ekki í leikmannahópi Liverpool (ekki ef ekki verður breytt um áherslur) heldur þarf Liverpool að fara á markaðinn og miðað við óþarfa pening sem hefur farið í ekki neitt (svo gott sem bókstaflega ekki neitt!) þá verða næstu kaup Liverpool að ganga fullkomlega upp því annars gæti fallið fyrir liðið, Dalglish, Comolli og alla sem því tengjast orðið nokkuð harkalegt (ath. er ekki að segja að Liverpool myndi falla)!
                          <message edited by Óli Haukur on 22. jan. 12 13:01>
                          Rauði Herinn blogg (Nýjast: 23.mars '12)

                           
                          #13
                            Nýliðinn3

                            • Total Posts : 224
                            • Joined: 31.07
                            • Status: offline
                            Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 22. jan. 12 11:37 (permalink)
                            "markaskorara af gullsnáð"
                             
                            Þetta bjargaði deginum.  
                             
                            #14
                              Pink Panther

                              • Total Posts : 1791
                              • Joined: 08.09
                              • Status: offline
                              Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 22. jan. 12 12:02 (permalink)

                              Það er verið að tala um Markaskorara sem fær Gullskó og er að guðsnáð! hann ákvað bara að hafa þetta í einu orði 
                              Hérna geta menn lært hvað Manchester United er á 10mín.

                              http://www.youtube.com/watch?v=slZ65HKUsVM&feature=fvw
                               
                              #15
                                Óli Haukur

                                • Total Posts : 2112
                                • Joined: 24.04
                                • Location: Akureyri
                                • Status: offline
                                Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 22. jan. 12 13:02 (permalink)
                                Nýliðinn3


                                "markaskorara af gullsnáð"

                                Þetta bjargaði deginum.  


                                Rauði Herinn blogg (Nýjast: 23.mars '12)

                                 
                                #16
                                  Voldemort

                                  • Total Posts : 552
                                  • Joined: 02.04
                                  • Status: offline
                                  Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 22. jan. 12 13:57 (permalink)
                                  Burtséð frá gullsnáðar markaskoraranum..... 
                                   
                                  Þá var þetta fínn póstur frá þér, Óli. Get tekið undir flest sem þú segir.
                                   
                                  #17
                                    ÁP

                                    • Total Posts : 11699
                                    • Joined: 11.12
                                    • Location: Hafnarfirði hvað annað
                                    • Status: offline
                                    Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 22. jan. 12 16:00 (permalink)
                                    Ég er ekki svo viss um að þetta séu endilega allir þessir menn sem séu flopp hjá okkur, kannski liggur vandinn á öðrum stöðum t.d hjá Kenny og félögum.
                                     
                                    Downing var frábær í fyrra og skoraði og skilaði stoðsendingum á fullu og var maður tímabilsins hjá þeim.
                                     
                                    Adam var sömuleiðis drifkrafturinn hjá Blackpool í fyrra og var virkilega gaman að fylgjast með honum, hann var einnig maður tímabilsins hjá þeim.
                                     
                                    Carrol var gjörsamlega að éta allar varnir í fyrra og átti alla skallabolta og góð langskot sem skiluðu mörkum.
                                     
                                    Henderson var mjög góður hjá Sunderland í fyrra en ég hef svo ekki mikið yfir honum að kvarta núna nema þegar hann er látinn á kantinn.
                                     
                                    Svo er það Kuyt sem hefur alltaf skorað 10-15 mörk á hverju einasta tímabili hjá okkur, hann er ekki komin með EITT mark í vetur.
                                     
                                    Ég held að sökin liggi mikið til hjá Kenny og núna þarf hann að taka smá séns og fara að láta liðið blása til sóknar og reyna að fá eitthvað meira frá þessum mönnum.
                                     




                                    “At the end of the storm there’s a golden sky”
                                     
                                    #18
                                      Cenarius

                                      • Total Posts : 2126
                                      • Joined: 30.09
                                      • Status: offline
                                      Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 22. jan. 12 19:14 (permalink)
                                      góðir púnktar ÁP
                                      hef verið stuðningsmaður Liverpool, Juventus, Real Madrid, Bayern Munich og San Antonio Spurs i gegnum súrt og sætt 
                                       
                                      #19
                                        ST 1300

                                        • Total Posts : 24
                                        • Joined: 20.08
                                        • Status: offline
                                        Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 22. jan. 12 20:00 (permalink)
                                        Er ekki vandamálið hjá KD, sjáið leikinn móti Stoke. Hver spilar svona á heimavelli? Stjóri sem hefur ekki fulla trú á sinni framlínu. Hann trúir ekki því að sú framlína sem hann hefur geti skorað mörk á móti Stoke. Ofurtrú á Henderson,Adams, sama hversu lélegir þeir eru. Var Adams góður á móti Bolton,nei, verður hann í byrjunarlið á móti City , já. Hvers vegna, hver skilboð eru þetta til leikmanna.

                                        Sittu á bekknum þanngað til að sýnir hvað þú getur ef þú kemur inná í næsta leik.
                                        Þetta væri hugsanlega skilboð til leikmanns. En hvað gerist, inní næsta byrjunarliði og allir hinir sem spila illa.
                                         
                                        #20
                                          Didi Haman

                                          • Total Posts : 1671
                                          • Joined: 16.06
                                          • Location: Sólarmegin í lífinu á Akureyri
                                          • Status: offline
                                          Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 22. jan. 12 20:01 (permalink)
                                          Mikið rétt hjá þér ÁP.
                                          Þetta er ótrúlegt að sjá mannskapinn spila núna, miðað við hvernig þeir voru að spila fyrir önnur lið á síðustu tímabilum....

                                          Diet is DIE with a "T"
                                           
                                          #21
                                            ÁP

                                            • Total Posts : 11699
                                            • Joined: 11.12
                                            • Location: Hafnarfirði hvað annað
                                            • Status: offline
                                            Re:Ástandið á LIVERPOOL í dag ;( 23. jan. 12 09:11 (permalink)
                                            Er ekki bara málið að við þurfum að fara að ráða klassa sóknarþjálfara ?
                                            Hvað gerði Morientes hjá okkur eftir að hafa brillerað bæði hjá Real og svo Monoko ?
                                            Jú hann kom tuðrunni aldrei í markið fyrir okkur.
                                             
                                            Sama með Robbie Keane sem að kemur til baka og fer til Villa og skorar 2 mörk í fyrsta leik en drullaði feitt á sig hjá Liverpool.
                                            Núna er Carrol að lenda í þessu sama og það má eiginlega segja það með Suarez líka sem skoraði miklu meira hjá Ajax.
                                            Eini sóknarmaðurinn sem hefur gert gott mót hjá okkur er Fernando Torres en meira segja hann varð lélegri og lélegri með tímanum sem hann var hjá okkur eftir að hafa byrjað frábærlega.
                                             
                                            Það þarf að fá einhverja breytingu á sóknarleik okkar manna.




                                            “At the end of the storm there’s a golden sky”
                                             
                                            #22
                                              Online Bookmarks Sharing: Share/Bookmark

                                              Jump to:

                                              Current active users

                                              There are 0 members and 1 guests.

                                              Icon Legend and Permission

                                              • New Messages
                                              • No New Messages
                                              • Hot Topic w/ New Messages
                                              • Hot Topic w/o New Messages
                                              • Locked w/ New Messages
                                              • Locked w/o New Messages
                                              • Read Message
                                              • Post New Thread
                                              • Reply to message
                                              • Post New Poll
                                              • Submit Vote
                                              • Post reward post
                                              • Delete my own posts
                                              • Delete my own threads
                                              • Rate post

                                              2000-2012 ASPPlayground.NET Forum Version 3.9