Spjallborðið

 Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0)

Change Page: 1234567 > | Showing page 1 of 7, messages 1 to 30 of 203
Author Message
Fuglinn

  • Total Posts : 11590
  • Joined: 30.10
  • Location: Grafarvogi
  • Status: online
Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 14:13 (permalink)

Bikarinn sem fæst lið reyna að vinna 

 

Þá er komið að leik þrjú í þríleiknum við Man City í Janúar.  Liverpool tapaði fyrsta leiknum í deildinni sannfarandi 3-0 vann svo næsta í Carling 1-0 en hins vegar er þessi leikur eftir. Liðið er á heimavelli og þar hefur það ekki tapað á leiktíðinni.  Ekki það að það hefur verið að vinna eitthvað mikið þar en hins vegar hefur liðið ekki tapað.  Þessi leikur verður fróðlegur fyrir margar sakir, Liverpool vill ekkert heitara en að vinna þennan titill komast á Wembley og annað slíkt.  Stuðingsmenn liðsins vilja það líka og því er þetta algjör must win leikur.  Hjá City skiptir þessi keppni allt í einu frekar miklu máli, eftir að liðið féll úr leik gegn Man Utd í FA cup þá vil liðið vinna þessa bikarkeppni.  En það verður bara koma í ljós hvort félagið fer með sigur á hólmi.

Við skulum vinda okkur í almennilega upphitun en fyrst er smá texti frá upphitara og smá svona hugleiðing, ef þið nennið ekki að lesa eitthvað væl skrollið aðeins niður og lesið umfjöllun mína um Liverpool


 

Liverpool Liverpool Liverpool.  Þetta er félagið sem við styðjum, horfum á vikulega í sjónvarpi og vonumst til þess að þeir vinna.  Þegar þeir vinna ekki er vika ónýt og allur dagurinn er ómögulegur.  Ég tala fyrir sjálfan mig, en eflaust marga aðra þegar ég segi að ég verð frekar pirraður í skapinu þegar Liverpool leikur illa og tapar.  Hvers vegna er maður að láta eitt fótbolta lið út í heimi skipta mann svona miklu máli?  Fæstir okkar hafa nokkra tengingu við félagið og fæstir okkar munu nokkurn tíma hafa einhverja tengingu við liðið.

 

Ég hef velt þessu fyrir mér, en fótbolta er bara svo stór íþrótt að hún skiptir alla máli.  Hún er rosalega einföld, flestir hafa æft hana og, nærrum því allir halda með einhverju liðið á Englandi.  En er það ekki orði frekar slæmt þegar fótbolta lið, út í heimi, er farið að eyðlileggja daginn, jafnvel vikuna vegna þess að þeir spila illa.  Sértaklega lið sem maður hefur litla tenginu við nema að horfa á í gegnum sjónvarp og skrifa fáein orð um liðið á spjallsíðu þess?  Fer þetta ekki bara að vera komið gott, á maður ekki bara að fara slaka á og minnka ástríðuna fyrir leiknum.  Því eftir allt saman er þetta jú bara leikur.  

 

Fyrir mína parta hef ég reynt að róa mig, ég fylgist jafn mikið með en ég læt þetta ekki pirra mig jafn mikið, enda væri maður virkilega þunglyndur ef maður léti Liverpool alltaf pirra sig því liðið á það til að vera einkennilega illa óútreiknalegt.  En ég held að flestir ættu að slaka á, alveg sama með hvaða liði þeir halda með og hætta að tala illa um náungan í hinu liðinu sem fæstir þekkja.  Vonandi að fólk hætti að taka þessari íþrótt jafn alvarlega og áður því þetta sýnst ekki upp á líf og dauða eins og góður maður sagði, þetta sýnist einfaldlega um að hafa gaman af og horfa í góðra manna hópi til þess eins að njóta leiksins

 vs

Keppni: Carling Cup

Dagur: Miðvikudagurinn 25.Janúar 2012   
Tímasetning: 19:45 samkvæmt liverpool.is    
Sýndur: Sýndur beint á stöð 2 sport HD  

 Dómari: Phil Dowd

 


 
  

Liverpool    
Stofnað:1892    
Heimavöllur: Anfield (45276)    
Stjóri: Kenny Dalglish

 

[<font]Liverpool liðið hefur spilað ömurlega í þeim tveim leikjum sem það hefur leikið frá því síðasta leik gegn City.  Liðið spilaði ömurlega gegn Stoke þar sem Dalglish var í einhverri tilraunarstarfssemi til að tjékka á hvað hann gæti haft marga varnamenn inná í einu.  Sá leikur var algjör leiðindi, svo mikil leiðindi að Sunnudagsmessan sýndi ekki einu sinni frá leiknum. Eftir þann leik lék Liverpool við fallbaráttu lið Bolton á útivelli og tapaði mjög sannfarandi 3-1. Liverpool lék hörmulega í þeim leik og var lélegt frá upphafi til enda.  Það var einungis Bellamy sem vann fyrir kaupinu þann dag en aðri voru lélegir.  

[<font]Ég er ekki mjög bjartsýn fyrir þennan leik, enda tel ég mig ekki hafa ástæðu til þess.  Liðið hefur leikið það ömurlega að ég tel litlar líkur á því að þeir geti unnið þennan leik.  En þar sem ég er nú að skrifa upphitun fyrir Liverpool spjallið þá get ég ekki annað en allavega þykjast vera bjartsýn.  Liðið er nú með 1-0 forustu og ég tel litlar líkur á því að vörnin spili illa tvo leiki í röð svo kannski nær liðið að gera jafntefli og fara þannig í úrslit.  Ekki misskilja mig, ég vil ekkert frekar en að liði komist í þennan úrslitaleik en þetta er City og þeir eru ekkert smá lið og miða við hvernig liðið lék gegn Bolton þá Guð hjálpi okkur ef þeir ætla að leika aftur þannig.

Liverpool hefur ekkert keypt enn í Janúara en stjórmenn félagsins eru komir til Liverpool til að horfa á þennan leik og leikinn gegn Man Utd.  Það verður þá eflaust eitthvað rætt um leikmannakaup.  Ég hef margoft talað um það hér að Dalglish er eflaust ekki að fara fá meiri pening til að kaupa enska meðalmenn þess vegna hefur félagið ekki ennþá keypt leikmenn.  En það verður auðvita að koma í ljós. Ég samt neita að trúa því að félagið kaupi ekki varnasinnaðan miðjumann en liðinu bráðvantar þannig leikmann meðan Lucas er meiddur.

 

Líklegt byrjunnarlið?

Það er ákveðin kjarni sem er öruggt að byrji þennan leik, það eru þeir Reina,Skrtel,Agger,Johnson,Enrique,Gerrard og Adam.  Svo munu þeir Maxi,Kuyt,Downing,Henderson,Bellamy,Carroll og Spearing skipta hinum 4 sætunum á milli sín.

Þar sem Spearing er líklega ennþá meiddur mun því miður ekki byrja þennan leik, þá verður Liverpool einfaldlega að láta einhver varnamann leika varnasinnað miðjumann.  Mér dettur 3 í hug, Agger, Carra eða Aurelio.  Ég tipp á að Agger leiki þarna og Carra verði í vörninni.  Aurelio er samt alveg líklegur.  Ég spái liðinu svona.

Reina

Johnson-Skrtel-Carra-Enrique

Agger

Henderson-Gerrard-Adam-Downing

Carroll

Þrátt fyrir ömurlegan leik gegn Bolton þá eigum við ekki mannskap í það að skipta öllu því liði út því miður bara. Ég tippa á að hin arfaslaki Maxi setjist á bekkinn og Bellamy mun koma inná í þessum leik.  Þar sem hann mun byrja gegn Man Utd um helgina.  Henderson verður á kantinum og Downing á sínum réttum kanti.  Carroll verður því miður einn frammi enda ekkert annað í boði eins og er.

 

Lykillmenn 

 

Var frábær í fyrrileiknum en hefur verið mjög slakur í síðustu tveim, er samt sem áður maður stóru leikjanna svo ég reikna með að hann verði frábær annað kvöld.  Frábær leiðtogi og verður að eiga topp leik svo Liverpool geti unnið þetta.

Hefur ekki verið nógu góður að undanförnu en vonandi okkar vegna verður hann í topp formi á morgun.

Hefur verið frábær á þessari leiktíð og er maðurinn á bakvið góðra vörn Liverpool.  Fiskaði víti í fyrri leiknum og var mjög góður í þeim leik.


Manchester City

Stofnað:1887

Heimavöllur:Etihad Stadium

Þjálfari: Roberto Mancini

 

Eftir að hafa tapað gegn Man Utd og Liverpool hefur City rifið sig upp og unnið síðustu tvo leiki.  Það var samt langt frá því að vera sannfarandi og vann liði Wigan aðeins 1-0 og sigraði svo Tottenham um helgina 3-2 í frábærum fótboltaleik.  

Af City er það annars að frétta að kompany er ennþá í banni og mun snúa til baka eftir þennan leik. Vandræðagemsinn Mario Balotelli er hins vegar á leið í 4 leikjabann fyrir að traðka á höfði Scott Parker.  Ég veit ekki hvort búið verður að dæma hann fyrir þennan leik, ef svo er þá verður hann í banni annars verður hann eflaust í byrjunnarliði.  Ég þarf ekki að hafa mörg orð um City er búinn af því í síðustu tveimur upphitunum þannig það er ekki mikið meira hægt að segja.  

Eina sem hægt er að segja núna er það að Mancini er ósáttur við að fá ekki að kaupa í Janúara og þarf að sitja upp með mann eins og Stefan Savic í svona leik, sem er skelfileg niðurstaða fyrir City en góð fyrir Liverpool. Hann hefur einnig verið að grínast með það að lána öðrum stjórum í deildinni pening til leikmannakaupa.  Enn nóg um þetta blaður, skulum fara í líklegt byrjunnarlið.

 

Ég veit ekki alveg hvernig það verður, en ég ætla ekki að hafa Balotelli í því þar sem hann gæti verið í banni.  Spái því svona

Hart

Richards-Savic-Lescott-Clichy

Nasri-Barry-Milner

Silva

Dezko-Aguero

 

Lykillmenn

Alveg eins og í fyrri leiknum er Silva lykillmaður, hann spilaði ekki þá en mikið rosalega er þessi gaur góður í fótbolta.

Frábær markvörður sá besti á Englandi, þarf að eiga topp leik ef City ætlar að vinna.

 


 
  • Liverpool og City hafa mættst 164 sinnum
  • Liverpool hefur unnið 81 City 42 og jafntefli hefur orði 41 sinni.
  • Í þessum leikjum hefur Liverpool skorað 288 mörk en fengið á sig 210 mörk
  • Leikurinn á morgun verður 6 leikur í Carling Cup hjá liðunum Liverpool hefur til þessa unnið 3, 1 jafntefli og 1 tap.
  • Markahæsti leikmaður City í sögunni er Eric Brook en hann skoraði 177 á árunum 1924-1940
  • Leikjahæsti leikmaður liðsins er Alan Oakes með 680 leik þar af aðeins 4 sinnum sem varamaður.  Hann lék þetta á árunum 1958-1976
  • Dýrasti leikmaður í sögu City er Aguero keyptur fyrir 35 milljónir punda (sama og Carroll) 
  • En mest fengið fyrir einn leikmann var 21 milljón punda þegar Chelsea keypti Shaun Wright Phillips árið 2005.
  • Dómari leiksins Phil Dowd hefur dæmt tvo úrslitaleiki Carling cup leikinn árið 2010 (Aston Villa vs Man Utd) og svo samfélagsskjöldin árið 2011 City vs Man utd
  • Hann gaf 139 gul spjöld í 38 leikjum á síðasta tímabili og 12 rauð.
  • Hann varð úrvaldsdeildadómari árið 2001
  
 

Spá: Ég segi að við förum áfram 1-1 Gerrard með okkar mark en Silva skorar fyrir City.

____________________________________________________________________________

Ég hvet svo fólk til að fara á Górilluna og Sportvitann(AK) annað kvöld til að horfa á leiki enda eru það heimavelli klúbbsins hér á Íslandi. Svo er auðvita hægt að fara á alla pubbi landsins að horfa á leikinn ;)  

____________________________________________________________________________
You'll Never Walk Alone:     

When you walk through a storm     
Hold your head up high     
And don't be afraid of the dark     
At the end of the storm     
Is a golden sky     
And the sweet silver song of a lark     
Walk on through the wind     
Walk on through the rain     
Tho' your dreams be tossed and blown     
Walk on, walk on     
With hope in your heart     
And you'll never walk alone     
You'll never walk alone     

Steven Gerrard:     

You're just too good to be true     
Can't take the ball off of you     
You've got a heavenly touch     
You pass like Souness to Rush     
And when we're all drunk in the bars     
We thank the Lord that you're ours     
You're just to good to be true     
Cant take the ball off of you     

Oh Steven Steven Steven Gerrard     
Oh Steven Steven Steven Gerrard     
Oh Steven Steven Steven Gerrard     
Oh Steven Steven Geeeer-raaaard     

Oh Steven Gerrard     
Because he hates Man U     
Oh Steven Gerrard     
He hates the Blueshite too     
Oh Steven Gerrard     
You're a Red through and through     

 

Takk fyrir mig

ÁFRAM LIVERPOOL YNWA

Fuglinn

 

 

 

 

<message edited by Fuglinn on 24. jan. 12 14:36>

http://www.facebook.com/LiverpoolFCIceland 

endilega likeið þessa síðu ;)

 
#1
    Delilah

    • Total Posts : 111
    • Joined: 17.07
    • Status: offline
    Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 14:21 (permalink)
    Ég vona að Liverpool leggist ekki í vörn allan leikinn og reyni að beita skyndissóknum.
    Ég vona að bæði lið sæki af fullum krafti allan tímann svo leikurinn verði hinn besti!
     
    3-3
     
    #2
      RiffiRaffi

      • Total Posts : 43
      • Joined: 06.01
      • Location: Akureyri
      • Status: offline
      Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 14:35 (permalink)
      Það er rétt, Delilah! aðalæð hlutur Liverpool sigur :-)


       
      #3
        Fuglinn

        • Total Posts : 11590
        • Joined: 30.10
        • Location: Grafarvogi
        • Status: online
        Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 14:38 (permalink)
        Jæja upphitun loksins komin inn, veit ekkert hvað var í gangi en þetta var mjög sértakt.
         

        http://www.facebook.com/LiverpoolFCIceland 

        endilega likeið þessa síðu ;)

         
        #4
          Voldemort

          • Total Posts : 552
          • Joined: 02.04
          • Status: offline
          Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 14:53 (permalink)
          Tímabilið hefur hingað til verið vonbrigði.
          Þó, það að Gerrard er kominn til baka og virkar í ágætis formi og sigra Carling Cup, myndi gera tímabilið bærilegra.
           
          Fínt að taka þetta einvígi bara með jafntefli annað kvöld.
           
          #5
            Hugo Rodallega

            • Total Posts : 635
            • Joined: 16.03
            • Location: grafarvogurinn fallegi
            • Status: offline
            Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 14:56 (permalink)
            City klárar þetta 3-1, því miður.
            Aguero skorar hat trick, Gerrard klórar i bakkann 
            Sulleymandanda


            Nú hann Einar frændi minn kemur í heimsókn
             
            #6
              Suarez7Carroll9

              • Total Posts : 2149
              • Joined: 20.06
              • Status: online
              Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 17:22 (permalink)
              Er að vonast eftir að völlurinn nái að sigra á morgun. En ég er rosalega hræddur um að við dettum út.
               
              Set 1-1 eða 0-2 tap.

               
              #7
                hamann

                • Total Posts : 63
                • Joined: 11.12
                • Location: Sauðárkróki, höfuðstað Norðurlands
                • Status: offline
                Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 17:33 (permalink)
                Einhvernveginn vonast ég til að adam byrji ekki,,, finnst alltaf eins og við séum 1.færri þegar hann byrjar.
                Mundi frekar vilja sjá engan í stað adam.
                 
                Gleymdi samt spánni.  Leikurinn endar 1-1, nokkuð klárt mál að carrol skorar ekki
                 
                mbk
                Rúnar
                <message edited by hamann on 24. jan. 12 17:34>
                 
                #8
                  ST 1300

                  • Total Posts : 24
                  • Joined: 20.08
                  • Status: offline
                  Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 18:09 (permalink)
                  Liverpool vinnur þetta 2-1, SG eitt og Bellamy eitt.
                   
                  #9
                    Povix

                    • Total Posts : 773
                    • Joined: 05.04
                    • Status: offline
                    Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 18:24 (permalink)
                    Algjörlega must win leikur fyrir okkar menn. Eftir 3-1 tapið gegn Bolton þá er ég ekki að vonast eftir einhverju svakalegu í deildinni því þurfum við að vinna þennan bikar!
                    En því miður er ég ekki bjartsýnn um sigur á morgun, held að þetta fari 1-1 eða 0-2 fyrir City. 
                    Kenny þarf að hugsa vel um valið sitt á morgun. 
                    En ég vil sjá liðið svona á morgun.
                     
                    Reina
                    GJ Skrtel Agger Jóse
                    Jordan Adam
                    Gerrard
                    Bellamy Carroll Downing 
                     
                     

                    Stuðningsmaður Liverpool & Real Madrid
                     
                    #10
                      messi er bestur

                      • Total Posts : 429
                      • Joined: 05.02
                      • Location: Reykjavik Breiðholt
                      • Status: offline
                      Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 18:49 (permalink)
                      Liverpool vinnur 2-1 bellamy 1 gerrard 1 balotelli 1
                       
                      #11
                        Suarez7Carroll9

                        • Total Posts : 2149
                        • Joined: 20.06
                        • Status: online
                        Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 18:50 (permalink)
                        messi er bestur


                        Liverpool vinnur 2-1 bellamy 1 gerrard 1 balotelli 1

                        Balotelli er í banni vinur ;)

                         
                        #12
                          gazzi

                          • Total Posts : 1279
                          • Joined: 21.10
                          • Status: offline
                          Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 19:03 (permalink)
                          Suarez7Carroll9


                          messi er bestur


                          Liverpool vinnur 2-1 bellamy 1 gerrard 1 balotelli 1

                          Balotelli er í banni vinur ;)

                          er ekki bara búið að kæra hann?
                           
                          #13
                            Suarez7Carroll9

                            • Total Posts : 2149
                            • Joined: 20.06
                            • Status: online
                            Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 19:14 (permalink)
                            gazzi


                            Suarez7Carroll9


                            messi er bestur


                            Liverpool vinnur 2-1 bellamy 1 gerrard 1 balotelli 1

                            Balotelli er í banni vinur ;)

                            er ekki bara búið að kæra hann?

                            Ég get svo svarið að hann er farinn í fjögurra leikja bann. Ef ekki þá biðst ég bara forláts...

                             
                            #14
                              Mr. Vedder

                              • Total Posts : 227
                              • Joined: 13.11
                              • Status: offline
                              Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 19:22 (permalink)
                              Það er alveg klárt að okkar menn verða að mæta dýrvitlausir inní næsta leik. Ég hreinlega nenni ekki að horfa á fleiri Liverpool leiki ef að strákarnir gefa sig ekki 140% í þetta. Ég er ekki langt frá því að segja upp áskrift minni á sport2, það þarf allavega eitthvað að breytast.
                               
                              Ég ætla að spá því að Dalglist nái nú að hvetja þá áfram. Leikurinn fer 2-1 fyrir Liverpool þar sem að Andy nokkur Carroll, sem verður hreinlega að byrja að skora, setur 1 eftir mistök Savic, svo innsiglar Jordan Henderson þetta fyrir okkur. Kun Agüero setur svo eitt fyrir þá.
                               
                              #15
                                Bellamy#39

                                • Total Posts : 4
                                • Joined: 07.01
                                • Status: offline
                                Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 19:36 (permalink)
                                Jordan Henderson Með Þrennu Klárt Mál! 
                                 
                                #16
                                  víðförull

                                  • Total Posts : 1132
                                  • Joined: 02.02
                                  • Status: offline
                                  Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 20:03 (permalink)
                                  Suarez7Carroll9


                                  gazzi


                                  Suarez7Carroll9


                                  messi er bestur


                                  Liverpool vinnur 2-1 bellamy 1 gerrard 1 balotelli 1

                                  Balotelli er í banni vinur ;)

                                  er ekki bara búið að kæra hann?

                                  Ég get svo svarið að hann er farinn í fjögurra leikja bann. Ef ekki þá biðst ég bara forláts...

                                  Samkvæmt þeim netmiðlum sem ég hef lesið þá er hann kominn í 4ja leikja bann.
                                  5-1  bellamy 1, gerrard 2, agger 1 og downing 1
                                  One of these day´s I´m going to cut you in to little pieces
                                   
                                  #17
                                    Livrapollur

                                    • Total Posts : 216
                                    • Joined: 22.04
                                    • Status: offline
                                    Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 24. jan. 12 21:25 (permalink)

                                    Reina 
                                    GJ Skrtel Agger Jóse 

                                    Carra
                                    Bellamy Jordan  Gerrard  Downing
                                    Carroll   

                                    Sé fyrir mér Carra þarna til að mæta silva, gæti verið Agger því Carra er ekki nógu fjótur.

                                    þetta verður markalaust eða unnið með einu, 

                                    The King is Kenny, long live The King.

                                    Afsakið stafsetninguna, ég er lesblindur.
                                     
                                    #18
                                      Jobbi

                                      • Total Posts : 6333
                                      • Joined: 27.12
                                      • Location: heima hjá mér
                                      • Status: online
                                      Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 00:29 (permalink)
                                      Flott upphitun.
                                       
                                      Spáði Palace - LFC í final eða Cardiff - City. Núna eru Cardiff komnir áfram þannig samkvæmt mér fara City áfram. En ég ætla samt að tippa á það að LFC fari áfram, eigum við ekki að segja bara 1-1 jafntefli á Anfield. Kuyt með markið.
                                      Áfram Liverpool
                                       
                                      #19
                                        Tony Pint

                                        • Total Posts : 1921
                                        • Joined: 01.11
                                        • Status: offline
                                        Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 09:17 (permalink)
                                        Flott upphitun!!!
                                         
                                        Ég spáði City sigri í fyrri leiknum. Þá kom Liverppol mér á óvart og átti fantagóðan leik. Það er hinsvegar ekkert sem gefur mér von um sigur í kvöld. Held þetta verði leikur þar sem City skorar mark í fyrri hálfleik og leikmenn Liverpool missa trúna og fá á sig tvö til viðbótar áður en yfir líkur. 0-3 tap.
                                         
                                         
                                         
                                         
                                        "The second half was a crazy game and when it is a crazy game you can't control things. Why was it crazy? Because it was crazy."
                                         
                                        #20
                                          Sin Cara

                                          • Total Posts : 503
                                          • Joined: 23.06
                                          • Location: Anfield
                                          • Status: offline
                                          Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 12:04 (permalink)
                                          Ég vil óska mér og frænda mínum með það að hafa komist á Wembley!!!!
                                          Ég hinsvegar vona að LFC vinni á móti City, Cardiff - Liverpool í úrslitum er einfaldlega drauma leikur fyrir mig.
                                          Ég spái LFC 1-1 Man C og síðan vona ég að Cardiff vinni úrslita leikinn 2-1!
                                          <message edited by Sin Cara on 25. jan. 12 12:06>
                                          Sin Cara 
                                          Faceless....
                                           
                                          #21
                                            Fuglinn

                                            • Total Posts : 11590
                                            • Joined: 30.10
                                            • Location: Grafarvogi
                                            • Status: online
                                            Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 17:13 (permalink)
                                            Ekki virðist vera mikil spenna fyrir þennan leik herna spjallinu ef marka ma umræðun hérna fyrir leik.

                                            http://www.facebook.com/LiverpoolFCIceland 

                                            endilega likeið þessa síðu ;)

                                             
                                            #22
                                              Ellisi

                                              • Total Posts : 217
                                              • Joined: 15.01
                                              • Status: offline
                                              Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 17:24 (permalink)
                                              Fuglinn


                                              Ekki virðist vera mikil spenna fyrir þennan leik herna spjallinu ef marka ma umræðun hérna fyrir leik.

                                               
                                              Kannski ekki mest spennandi titilinn til að vera í undanúrslitum um, svo í raun skiljanlegt.  Held það komi þó meiri lífsneysti í þetta hjá ykkur ef þið komist í úrslit gegn Cardiff.  Titill er jú titill og það er svolítið síðan Liverpool hafði tækifæri til að lifta einum á loft.
                                               
                                              #23
                                                Jobbi

                                                • Total Posts : 6333
                                                • Joined: 27.12
                                                • Location: heima hjá mér
                                                • Status: online
                                                Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 17:55 (permalink)
                                                Fuglinn


                                                Ekki virðist vera mikil spenna fyrir þennan leik herna spjallinu ef marka ma umræðun hérna fyrir leik.

                                                 
                                                Ég er hrikalega spenntur fyrir þessum leik. Hafði bara annað að gera. En hinsvegar er þetta spjall á niðurleið og því lítil umræða á því hvort sem það er um þennan leik eða annað.
                                                Áfram Liverpool
                                                 
                                                #24
                                                  Jobbi

                                                  • Total Posts : 6333
                                                  • Joined: 27.12
                                                  • Location: heima hjá mér
                                                  • Status: online
                                                  Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 19:15 (permalink)
                                                  Liðið klárt.
                                                   
                                                  The Reds team in full is: Reina, Johnson, Enrique, Skrtel, Agger, Downing, Kuyt, Adam, Henderson, Gerrard, Bellamy.
                                                   
                                                  Subs: Doni, Kelly, Carroll, Maxi, Coates, Carragher, Shelvey.
                                                  Áfram Liverpool
                                                   
                                                  #25
                                                    Júlli

                                                    • Total Posts : 21468
                                                    • Joined: 17.01
                                                    • Location: Í Noregi, Mjøndalen
                                                    • Status: offline
                                                    Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 19:19 (permalink)
                                                    Fuglinn


                                                    Ekki virðist vera mikil spenna fyrir þennan leik herna spjallinu ef marka ma umræðun hérna fyrir leik.

                                                     
                                                    Ég hef ekki fundið fyrir spennu fyrir þennan leik í dag, af hverju veit ég ekki. 
                                                    En spjallið er á mikilli niðurleið hvað fjölda spjallverja varðar og virkni þeirra. 
                                                    Rosalega margir farnir í jákórinn á kop.is sem og á facebook þar sem bara skoðanir Liverpool manna fá að koma fram. 
                                                    Hérna eru hinsvegar allir velkomnir og að því að virðist virðist það fara fyrir brjóstið á einhverjum og þeir hafa fært sig um set. 
                                                     
                                                    Persónulega kýs ég þá þetta og að hafa þetta fámennt en góðmennt í stað þess að einhver segir, djöfull er Adam búinn að vera slakur í kvöld og fær 40 like og 30 segja "já". 
                                                     
                                                    En að leiknum þá á ég ekki von á því að ég horfi á hann nema kannski með öðru auganu á stream en ég spái 2-2 þar sem Liverpool jafnar á 90+4 mín með marki frá Carroll :)
                                                    Stuðningsmaður Liverpool, Napoli og Dortmund. Ný tippkeppni og fantasy leikur.

                                                     
                                                    #26
                                                      Júlli

                                                      • Total Posts : 21468
                                                      • Joined: 17.01
                                                      • Location: Í Noregi, Mjøndalen
                                                      • Status: offline
                                                      Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 19:21 (permalink)
                                                      Jobbi


                                                      Liðið klárt.

                                                      The Reds team in full is: Reina, Johnson, Enrique, Skrtel, Agger, Downing, Kuyt, Adam, Henderson, Gerrard, Bellamy.

                                                      Subs: Doni, Kelly, Carroll, Maxi, Coates, Carragher, Shelvey.

                                                       
                                                      Ekkert óvænt við þetta lið en mér sýnist Dalglish ekki refsa neinum í dag eftir drullu gegn Bolton. 
                                                       
                                                      Kannski besta liðið í dag en ég hefði viljað sjá Dalglish henda mönnum eins og Adam, Downing og Johnson á bekkinn og inn með Carroll, Kelly og Shelvey. 
                                                      Maxi gat reyndar núll í síðasta leik þannig að það kemur kannski ekki á óvart að hann sé á bekk enda ekki verið fyrsti kostur hjá Dalglish. 
                                                      Annars hef ég ekki hugmynd um hvað liggur að baki þessu vali og þetta bara pælingar hjá mér. 
                                                      Stuðningsmaður Liverpool, Napoli og Dortmund. Ný tippkeppni og fantasy leikur.

                                                       
                                                      #27
                                                        Tony Pint

                                                        • Total Posts : 1921
                                                        • Joined: 01.11
                                                        • Status: offline
                                                        Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 19:24 (permalink)
                                                        Ég sé Aguero er á bekknum hjá City, finnst það jákvætt. Finnst reyndar City liðið ekki eins sterk á pappírum og ég hefði ættlað, það er spurning hvernig leikmenn Liverpool ráða við Silva. Og hver verður í því verkefni.
                                                        "The second half was a crazy game and when it is a crazy game you can't control things. Why was it crazy? Because it was crazy."
                                                         
                                                        #28
                                                          Jobbi

                                                          • Total Posts : 6333
                                                          • Joined: 27.12
                                                          • Location: heima hjá mér
                                                          • Status: online
                                                          Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 19:29 (permalink)
                                                          Júlli


                                                          Fuglinn


                                                          Ekki virðist vera mikil spenna fyrir þennan leik herna spjallinu ef marka ma umræðun hérna fyrir leik.


                                                          Ég hef ekki fundið fyrir spennu fyrir þennan leik í dag, af hverju veit ég ekki. 
                                                          En spjallið er á mikilli niðurleið hvað fjölda spjallverja varðar og virkni þeirra. 
                                                          Rosalega margir farnir í jákórinn á kop.is sem og á facebook þar sem bara skoðanir Liverpool manna fá að koma fram. 
                                                          Hérna eru hinsvegar allir velkomnir og að því að virðist virðist það fara fyrir brjóstið á einhverjum og þeir hafa fært sig um set. 

                                                          Persónulega kýs ég þá þetta og að hafa þetta fámennt en góðmennt í stað þess að einhver segir, djöfull er Adam búinn að vera slakur í kvöld og fær 40 like og 30 segja "já". 

                                                          En að leiknum þá á ég ekki von á því að ég horfi á hann nema kannski með öðru auganu á stream en ég spái 2-2 þar sem Liverpool jafnar á 90+4 mín með marki frá Carroll :)

                                                           
                                                          Er ekki já-maður, er eiginlega nei-maðurinn á þessum já-stöðum þar sem ég reyni að verja mína menn þegar 90% manna drulla yfir þá og þeir eiga kannski ekki skituna skilið.
                                                          En þetta spjall er hægt að lífga við, bara spurning hvernig.
                                                          Áfram Liverpool
                                                           
                                                          #29
                                                            Jobbi

                                                            • Total Posts : 6333
                                                            • Joined: 27.12
                                                            • Location: heima hjá mér
                                                            • Status: online
                                                            Re:Upphitun CC: Liverpool (1) vs Man City (0) 25. jan. 12 19:33 (permalink)
                                                            Júlli


                                                            Jobbi


                                                            Liðið klárt.

                                                            The Reds team in full is: Reina, Johnson, Enrique, Skrtel, Agger, Downing, Kuyt, Adam, Henderson, Gerrard, Bellamy.

                                                            Subs: Doni, Kelly, Carroll, Maxi, Coates, Carragher, Shelvey.


                                                            Ekkert óvænt við þetta lið en mér sýnist Dalglish ekki refsa neinum í dag eftir drullu gegn Bolton. 

                                                            Kannski besta liðið í dag en ég hefði viljað sjá Dalglish henda mönnum eins og Adam, Downing og Johnson á bekkinn og inn með Carroll, Kelly og Shelvey. 
                                                            Maxi gat reyndar núll í síðasta leik þannig að það kemur kannski ekki á óvart að hann sé á bekk enda ekki verið fyrsti kostur hjá Dalglish. 
                                                            Annars hef ég ekki hugmynd um hvað liggur að baki þessu vali og þetta bara pælingar hjá mér. 

                                                             
                                                            Það er hægt að ná miklu úr þessu byrjunarliði en líka skemma þetta byrjunarlið.
                                                             
                                                            4-5-1 með flata miðju þar að segja engan í holu og stilla svona upp:
                                                            Reina
                                                            Johnson-Skrtel-Agger-Enrique
                                                            Downing-Gerrard-Henderson-Adam-Bellamy
                                                            Kuyt
                                                             
                                                            Þetta er veika liðið þarna fyrir ofan og menn nýtast ekki jafnvel og þeir geta að mínu mati. Hinsvegar sé liðinu stillt upp svona tel ég okkur eiga mikinn möguleika og við fáum mest út úr okkar mönnum. Reyndar er Bellamy bæði góður á væng og frammi.
                                                             
                                                            Reina
                                                            Johnson-Skrtel-Agger-Enrique
                                                            Kuyt-Henderson-Adam-Downing
                                                            Gerrard
                                                            Bellamy
                                                             
                                                            Gerrard betri í holunni en á miðjunni og með hraða Bellamy gegn slökum Savic, Gerrard að stinga honum innfyrir sé ég okkur geta ógnað, Kuyt lokar svæðum hægra megin og Downing reynir sitt besta í að ógna vinstra megin.
                                                             
                                                            Eins og ég segi, hægt að skemma byrjunarliðið með röngum áherslum en einnig gera mjög gott mót með réttum aðferðum.
                                                             
                                                            Áfram Liverpool.
                                                            Áfram Liverpool
                                                             
                                                            #30
                                                              Online Bookmarks Sharing: Share/Bookmark
                                                              Change Page: 1234567 > | Showing page 1 of 7, messages 1 to 30 of 203

                                                              Jump to:

                                                              Current active users

                                                              There are 0 members and 1 guests.

                                                              Icon Legend and Permission

                                                              • New Messages
                                                              • No New Messages
                                                              • Hot Topic w/ New Messages
                                                              • Hot Topic w/o New Messages
                                                              • Locked w/ New Messages
                                                              • Locked w/o New Messages
                                                              • Read Message
                                                              • Post New Thread
                                                              • Reply to message
                                                              • Post New Poll
                                                              • Submit Vote
                                                              • Post reward post
                                                              • Delete my own posts
                                                              • Delete my own threads
                                                              • Rate post

                                                              2000-2012 ASPPlayground.NET Forum Version 3.9