Spjallborðið

 Tekjuhæstu lið Evrópu

Author Message
gazzi

  • Total Posts : 1279
  • Joined: 21.10
  • Status: offline
Tekjuhæstu lið Evrópu 09. feb. 12 18:30 (permalink)
Er þetta ekki það sem skiptir mestu máli í dag ásamt árangri liðsins á vellinum?
 
Sá þetta á vísi og fannst þetta frekar athyglisvert, vissi ekki hvar ég átti að setja þetta þannig ég bjó bara til nýjan þráð.
20 lið eru á listanum og eru öll úr fimm stærstu deildakeppnum Evrópu. England á sex lið, Ítalía fimm, Þýskaland fjögur, Spánn þrjú og Frakkland tvö. 

Manchester City á vellauðuga eigendur sem hafa dælt peningum inn í félagið en liðið er í tólfta sæti á listanum.
 
Hvað í andskotanum ætla city að gera þegar nýju reglurnar koma inn, er ekki bara bókað mál að þeir fá ekki að taka þátt í meistaradeildinni?
 
Eru fleiri refsingar í þessum reglum heldur en að fá ekki að taka þátt í evrópukeppnunum?
 
Tekjulisti Deloitte:

1. Real Madrid 479,5 milljónir evra
2. Barcelona 450,7
3. Manchester United 367
4. Bayern München 321,4
5. Arsenal 251,1
6. Chelsea 249,8
7. AC Milan 235,1
8. Inter 211,4
9. Liverpool 203,3
10. Schalke 202,4
11. Tottenham 181
12. Manchester City 169,6
13. Juventus 153,9
14. Marseille 150,4
15. AS Roma 143,5
16. Dortmund 138,5
17. Lyon 132,8
18. Hamburg 128,8
19. Valencia 116,8
20. Napoli 114,9
 
http://www.visir.is/real-enn-rikasta-knattspyrnufelag-heims/article/2012120209026
 
#1
    Cenarius

    • Total Posts : 2126
    • Joined: 30.09
    • Status: offline
    Re:Tekjuhæstu lið Evrópu 09. feb. 12 18:44 (permalink)
    væri gaman að sjá rök og allt sem þeir telja inn, i ljósi þess að barca sé á hausnum og real er búið að bjarga slatti oft, city er ekki með svona miklar tekjur vs eyðslu t.d. held að man utd hljóti að vera efstir miða við veltu þegar á allt er litið enda virðast þeir vera að ná að borga niður lán sitt mjög vel ásamt þvi að geta fengið þá leikmenn til sín sem þeir vilja, i ljósi þess hvað við skuldum litið i dag og höfum verið að gera góða samninga þá held ég að við verðum ofar næst 
    hef verið stuðningsmaður Liverpool, Juventus, Real Madrid, Bayern Munich og San Antonio Spurs i gegnum súrt og sætt 
     
    #2
      Ellisi

      • Total Posts : 217
      • Joined: 15.01
      • Status: offline
      Re:Tekjuhæstu lið Evrópu 09. feb. 12 19:23 (permalink)
      Ef það verður ekki gerð nein athugasemd útaf samningnum um nafnið á vellinum þá verður það mjög auðvelt fyrir Man city að halda sér í fremstu röð og fara í Meistaradeildina.
       
      Þarf bara að millifæra á bróður sinn og bróðir hans dælir peningum inn í liðið í formi t.d. treyjusamninga, auglýsingasamninga, merkja, fána og svo framvegis
       
      100m fána samningur, 100m treyjusamningur, 100m æfingagallasamningur og svo framvegis og framvegis
       
      #3
        Júlli

        • Total Posts : 21468
        • Joined: 17.01
        • Location: Í Noregi, Mjøndalen
        • Status: offline
        Re:Tekjuhæstu lið Evrópu 09. feb. 12 20:27 (permalink)
        Eins og Ellisi bendir á þá munu þessir menn reyna að finna allar leiðir framhjá nýjum reglum og ég er viss um það að FIFA(eru það ekki þeir sem setja þess reglu?) eiga ekki eftir að hugsa út í þetta.
        Það er nefninlega svo fyndið að við sófakrumpurnar sjáum þetta en þessir snillingar sem stjórna þessu eru gjörsamlega clueless. Veit, smá fullyrðing en vitið til, þetta verður vesen en engu að síður fagna ég þessu.
         
        Cenarius bendir líka á nokkra góða punkta sem og rétta. Real hefur blóðmjólkað spænsku þjóðina þar sem forseti landsins er svo siðblindur að hann notar peninga skattborgarans í styrki til Real sem og peninga frá evrópusambandinu sem ætlaðir eru t.d. til vegagerðar(var að sjá heimildarþátt um þetta).
         
        Það er líka rétt sem Gazzi bendir á og það er það sem skiptir máli. Peningar skipta öllu en með þessari nýju reglu þá vonandi lagast þetta og fleiri lið en t.d. 2 á Spáni berjist um titilinn.
        Svo held ég að það sé rétt Gazzi að í byrjun þá gildi þetta bara það að fá ekki þátttökurétt í evrópukeppnirnar en svo held ég að þeir hafi rætt um að setja sekta klúbbana en er ekki viss um það.
        Með öllu réttu ættu City og Chelsea að vera í djúpum skit.
        Stuðningsmaður Liverpool, Napoli og Dortmund. Ný tippkeppni og fantasy leikur.

         
        #4
          Dennis

          • Total Posts : 1513
          • Joined: 24.01
          • Status: offline
          Re:Tekjuhæstu lið Evrópu 09. feb. 12 21:17 (permalink)
          Voru Liverpool ekki að einhvern stærsta treyjusamning á Englandi um daginn? Þurfið augljóslega stærri völl til að fá inn meiri tekjur.
           
          Arsenal þurfa einnig að laga styrktar samninga sína en Arsenal eru með verstu styrktar samninga á þessum lista. Stjórnin hjá Arsenal segir hins vegar að það verði ekki gert fyrr en 2014 sem er ekki gott mál.
           
          Annars bind ég miklar vonir við að FFP reglunum verði fylgt. Annars á Arsenal ekki sjéns næstu árin. :(
           
          #5
            Suarez7Carroll9

            • Total Posts : 2149
            • Joined: 20.06
            • Status: online
            Re:Tekjuhæstu lið Evrópu 09. feb. 12 21:36 (permalink)
            Dennis


            Voru Liverpool ekki að einhvern stærsta treyjusamning á Englandi um daginn? Þurfið augljóslega stærri völl til að fá inn meiri tekjur.

            Arsenal þurfa einnig að laga styrktar samninga sína en Arsenal eru með verstu styrktar samninga á þessum lista. Stjórnin hjá Arsenal segir hins vegar að það verði ekki gert fyrr en 2014 sem er ekki gott mál.

            Annars bind ég miklar vonir við að FFP reglunum verði fylgt. Annars á Arsenal ekki sjéns næstu árin. :(

            Það myndi eftir mínu besta viti sjást á næsta lista sem yrði gefinn út. Þegar þessi peningur er kominn í kassan og svoleiðis.

             
            #6
              Online Bookmarks Sharing: Share/Bookmark

              Jump to:

              Current active users

              There are 0 members and 1 guests.

              Icon Legend and Permission

              • New Messages
              • No New Messages
              • Hot Topic w/ New Messages
              • Hot Topic w/o New Messages
              • Locked w/ New Messages
              • Locked w/o New Messages
              • Read Message
              • Post New Thread
              • Reply to message
              • Post New Poll
              • Submit Vote
              • Post reward post
              • Delete my own posts
              • Delete my own threads
              • Rate post

              2000-2012 ASPPlayground.NET Forum Version 3.9